Erlent

Beittu vatns­þrýsti­dælum á mót­mælendur

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Mótmælendur voru mun fleiri en leyfilegt er.
Mótmælendur voru mun fleiri en leyfilegt er. EPA-EFE/EVERT ELZINGA

Lögreglan í Hollandi beitti vatnsþrýstidælum á mótmælendur ríkisstjórnarinnar, og sóttvarnaaðgerðum þeirra, í almenningsgarði í Haag í dag. Um tvö þúsund manns voru saman komin í miðborginni til að mótmæla sóttvarnaaðgerðum og öðrum stefnumálum ríkisstjórnarinnar.

Lögreglumenn á hestum og óeirðalögreglan mættu á staðinn, beittu kylfum og lögregluhundum gegn mótmælendum eftir að þeir neituðu að yfirgefa svæðið að loknum mótmælum.

Kjörstaðir opnuðu í gær vegna þingkosninga sem fara nú fram í landinu. Kjörstaðir verða opnir í þrjá daga vegna sóttvarnaaðgerða og til þess að forða því að of margir mæti á kjörstað hverju sinni.

Yfirvöld höfðu gefið leyfi fyrir mótmælum, en aðeins fyrir 200 manns, en mun fleiri söfnuðust saman í miðborginni. Lestarsamgöngur inn í borgina voru stöðvaðar um tíma til þess að koma í veg fyrir að fleiri bættust í hóp mótmælenda.

Lögregla handtók einhverja við mótmælin en nákvæm tala er óþekkt.

Einhverjir voru handteknir í mótmælunum en óvíst er hve margir það voru.EPA-EFE/EVERT ELZINGA

Myndband sem er í dreifingu á netinu sýnir lögreglumenn berja mótmælanda sem liggur í jörðinni með kylfum. Að sögn lögreglu hafði maðurinn ráðist á lögreglumenn með priki. Þá greindi hollenska lögreglan frá því í dag að lögreglumenn hafi skotið viðvörunarskoti af byssu þegar verið var að rýma svæðið. Það mál er nú til rannsóknar.

„Það kann að vera að hér sé veira en það að loka öllu samfélaginu er allt of langt gengið,“ sagði Michel Koot, 68 ára mótmælandi, í samtali við fréttastofu AFP í dag.

„Ég hef tekið eftir því að það er mjög auðvelt að taka mörg okkar réttindi í burt á augabragði og meirihluti fólks tekur ekki einu sinni eftir því en það er margt í gangi. Ég hef áhyggjur af því hvað þetta mun gera barnabörnum mínum,“ sagði hann.

Lögregla nálgast fólk, sem mótmælir kórónuveiruaðgerðum, í Amsterdam í febrúar.EPA-EFE/EVERT ELZINGA

Þetta eru ekki fyrstu mótmælin vegna sóttvarnaaðgerða sem farið hafa fram í Hollandi. Eftir að útgöngubann frá klukkan 21 til 4:30 var innleitt í janúar var mótmælt í fjölda hollenskra borga. Útgöngubann hafði þá ekki verið sett á frá því að Nasistar hertóku landið í síðari heimstyrjöld. Útgöngubannið mun gilda að minnsta kosti þar til í lok mars.

Allar verslanir og fyrirtæki sem ekki eru talin nauðsynleg eru lokuð. Fleiri en tveir mega ekki koma saman.

Meira en 1,1 milljón manns hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni í Hollandi frá upphafi faraldursins og meira en 16 þúsund hafa látist af völdum hennar.


Tengdar fréttir

Fleiri hundruð mót­mælendur hand­teknir víða um Evrópu

Nokkur hundruð mótmælendur hafa verið handteknir í Evrópsku borgunum Brussel, Búdapest og Vín þar sem hörðum aðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins hefur verið mótmælt. Í austurrísku höfuðborginni Vín hefur hópur fólks úr röðum ný-nasista til að mynda komið saman til mótmæla.

Óeirðirnar endurspegli ekki hug almennings

Lögreglan í Hollandi segir að óeirðirnar í landinu seinustu daga vegna hertra kórónuveirutakmarkana séu þær verstu í landinu í fjörutíu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×