Fótbolti

Rúnar Már byrjar af krafti í Rúmeníu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rúnar Már Sigurjónsson er farinn af stað í Rúmeníu.
Rúnar Már Sigurjónsson er farinn af stað í Rúmeníu. Vísir/Vilhelm

Landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson spilaði sinn fyrsta leik með CFR Cluj í rúmensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn vannst 4-0 og Rúnar Már lagði upp eitt marka liðsins.

Rúnar Már hefur verið hægt og rólega að koma sér inn í hlutina hjá Cluj. Hann gekk nýverið í raðir félagsins en hann lék áður með Astana í Kasakstan. Í dag var hann loks á bekknum er liðið fékk Politehnica Iasi í heimsókn.

Rúnar Már kom inn af bekknum á 76. mínútu leiksins og lagði upp síðasta mark liðsins tíu mínútum síðar. Lokatölur eins og áður sagði 4-0 og einkar þægilegur fyrsti leikur fyrir Rúnar Má í Rúmeníu.

Cluj er jafnt FCSB á toppi deildarinnar með 60 stig. Þrjár umferðir eru eftir í deildarkeppninni, að henni lokinni tekur við úrslitakeppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×