Handtökuskipun gefin út á hendur fyrrverandi forseta Kjartan Kjartansson skrifar 13. mars 2021 09:19 Jeanine Áñez, þáverandi starfandi forseti, á athöfn sem var haldin til að heiðra bólivíska hermenn sem tóku þátt í að handsama byltingarleiðtogann Ernesto „Ché“ Guevara í október. Vísir/EPA Saksóknarar í Bólivíu hafa gefið út handtökuskipun á hendur Jeanine Áñez, fyrrverandi starfandi forseta landsins, og nokkrum fyrrverandi ráðherrum. Áñez er sökuð um að hafa tekið þátt í valdaráni gegn Evó Morales, fyrrverandi forseta. Sjálf segist hún fórnarlamb pólitískra hefnda flokks Morales sem er nú aftur við völd.
Morales hrökklaðist úr embætti og flúði land eftir umdeildar forsetakosningar haustið 2019. Ásakanir voru um kosningasvik og til blóðugra mótmæla kom. Varaforseti Morales og leiðtogar öldungadeildar þingsins flúðu einnig land. Þannig kom það til að Áñez, leiðtogi lítils íhaldsflokks, tók við embætti forseta tímabundið. Sósíalistaflokkur Morales vann svo stórsigur í forseta- og þingkosningum sem voru haldnar í október. Breska ríkisútvarpið BBC segir að saksóknarar hafi ekki greint frá sakarefninu ennþá. Áñez tísti handtökuskipuninni sem hún segir að hafa verið vegna hryðjuverka, uppreisnar og samsæris. „Pólitísku ofsóknirnar eru hafnar,“ tísti hún. Rodrigo Guzman, fyrrverandi orkumálaráðherra, og Álvaro Coimbra, fyrrverandi dómsmálaráðherra, hafa þegar verið handteknir.
Bólivía Mest lesið Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Erlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Innlent Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Innlent Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni Innlent Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu Innlent Fleiri fréttir Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Sjá meira