Ekkert sýni úr sauðfénu sem fellt var í haust reyndist jákvætt fyrir riðuveiki Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 6. mars 2021 18:30 „Mér finnst þessi mynd svolítið talandi. Í átt að Mælifellshnjúknum, síðustu sporin," segir Guttormur um þessa mynd sem hann tók af kindunum sínum áður en þeim var lógað vegna riðuveiki. Guttormur Hrafn Stefánsson Af rúmlega þúsund sýnum, sem voru rannsökuð úr getum og sauðkindum sem skera þurfti niður vegna riðuveiki á bænum Grænumýri í Skagafirði í haust, reyndist ekkert þeirra vera jákvætt. Bóndinn segir þetta bæði góð tíðindi og slæm en mörgum spurningum ósvarað. Hann segir samningaviðræður við ríkið hafa gengið bæði hægt og illa en ennþá hefur ekkert býli fengið greiddar bætur vegna niðurskurðarins. „
Það er búið að greina öll sýnin úr öllum skepnum sem voru hérna og fóru í niðurskurðin,“ segir Guttormur Hrafn Stefánsson, bóndi á Grænumýri í samtali við Vísi, en hann fékk frumniðurstöður úr greiningu sýna í hendur á dögunum. „Þetta eru í sjálfu sér góðar fréttir að það greinist ekki neitt. Þá er vonandi lítið í umhverfinu og þá er alla veganna þessi hjörð bara hrein. Mínar kindur hafa þá alla veganna ekki smitað þótt þær hafi verið uppi um fjöll og firnindi yfir sumarið. Þá er það alla veganna öruggt,“ segir Guttormur. Hann segir að úr því sem komið er sé best að horfa á björtu hliðarnar en þessi niðurstaða auki líkurnar á að hægt verði að hefja aftur sauðfjárbúskap á jörðinni. „Við vitum með þessa riðuveiki hvernig hún er. Þetta tekur langan tíma að byggjast upp í eitlum og vefjum þannig að þetta verði greinanlegt,“ segir Guttormur. „Enginn veit nákvæmlega hvenær þessi hrútur sem var smitaður, hann kemur sem lamb hingað, hvenær byrjar hann að losa út smitefni og hvað er hann búinn að vera með riðuveikina lengi í sér og hvenær fer hann að losa út í umhverfið og í aðrar skepnur. Eru það einhverjir mánuðir? Eitt ár? Tvö ár? Það bara veit enginn. Þá tekur kindurnar mínar langan tíma að greinast í þeim eftir sýnatöku. Þetta sé flókið ferli og langdregið,“ segir Guttormur. Þrautseigur sjúkdómur Í grein frá árinu 2004 í tímaritinu Frey, eftir Guðmund Georgsson við tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði, segir meðal annars eftirfarandi um faraldsfærði riðu: „Það er með ólíkindum hvað smitefnið er þolið. Því vaknar að sjálfsögðu sú spurning hversu lengi það getur haldist virkt í umhverfinu. Af reynslu hérlendis með sauðfjárriðu er ótvírætt ljóst að það getur a.m.k. haldist virkt í þrjú ár í umhverfinu,“ skrifaði Guðmundur. Í ljósi þessa telur Guttormur, að þrátt fyrir að öll sýnin hafi verið neikvæð, að ákvörðunin hafi verið rétt. Þótt hún hafi verið þungbær. „Ég er á þeirri skoðun. Auðvitað væri hægt að taka sýni úr lifandi skepnum og greina þau en það eru bara ekki græjur til þess á Íslandi. Það þarf þá bara að uppfæra tæknina hérna ef það er hægt annars staðar, með því að taka sýni úr legvatni á kindum og svoleiðis til dæmis. Það er komið 2021 og tæknin er til,“ segir Guttormur. Allt kosti það þó pening og til þurfi vilja stjórnvalda til að efla og þróa rannsóknir, þróun og tækjabúnað á þessu sviði. „Eins og staðan er núna í dag þá höfum við ekkert annað vopn heldur en að bara taka féð í burtu og fjarlægja það. Maður getur ekki beðið í einhver ár í óvissu um það hvort að skepnurnar hafi smitast eða ekki og hvort það smitast þá um allt í umhverfinu,“ segir Guttormur. Í störukeppni við ráðuneytið og engar bætur ennþá Hann vonast til þess að geta hafið búskap á jörðinni á nýjan leik. „Auðvitað stefnir maður á það en það gengur nú ekki vel að semja við blessað ríkið. Það eru komnir fjórir og hálfur mánuður síðan að þetta kom upp hérna í firðinum og það er enginn kominn með samning í hendurnar sem hann getur skrifað undir,“ segir Guttormur. Nú sé aðeins verið að reyna að semja miðað við þá reglugerð sem er í gildi en ekki miðað við þær nýju breytingar sem búið sé að boða. „Ég er mjög ósáttur með aðkomu ráðuneytisins að þessum málum og þennan hægagang og störukeppni. Maður spyr að hlutum og það eru engin svör. Við erum búin að fá drög að samningi en það var bara svo margt sem að passaði ekki og við vildum bara fá ákveðin svör sem er ekki búið að veita. Sem er ekki í takt við það sem hefur verið að gerast undanfarin ár,“ segir Guttormur, vonsvikinn. „En þeir vöknuðu fyrir svona viku, tíu dögum síðan og fóru að vilja gera eitthvað. En það er samt of langur tími til að vera ekki kominn með samning í hendurnar. Þó að við höfum farið fram á það, ég fór fram á að ég fengi samning áður en að ég afhenti féð,“ segir Guttormur en það gekk ekki eftir. Féð farið en sitja eftir með skuldirnar Hann hafi ennþá hvorki fengið bætur fyrir kindurnar sínar né geiturnar sem þurfti að fella. „En þau tóku féð og skildu skuldirnar eftir. Verkferlið þarf að vera miklu skýrara,“ segir Guttormur. Hann segir að riðuveikismitið sé ekki aðeins áfall fyrir þá bændur og fjölskyldur þeirra sem þurftu að skera niður sitt fé, heldur fyrir sveitina alla og raunar bændur um allt land. „Þetta er kjaftshögg fyrir sveitina alveg frá Héraðsvötnum og austur í Eyjafjarðará,“ segir Guttormur. Alls þurfti að skera niður þúsundir fjár á fimm bæjum í Skagafirði í haust. Þá kom upp riðuveiki í Vestur-Húnavatnsýslu nýverið, ótengt smitinu sem upp kom í Skagafirði í haust.
Landbúnaður Riða í Skagafirði Skagafjörður Stjórnsýsla Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Fleiri fréttir „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Úrbætur á gæsluvarðhaldsúrræði fyrir unglinga og upphaf körfuboltatímabilsins Skoða betri úrræði fyrir unglinga í gæsluvarðhaldi Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Hafði „útdraganlega kylfu“ meðferðis Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Sjá meira