Viðskipti innlent

Telur æski­legt að hægt verði að kaupa hlut í Ís­lands­banka fyrir nokkra tugi þúsunda

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, vonast til að ríkið fái yfir 100 milljarða króna fyrir allan hlut sinn í Íslandsbanka.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, vonast til að ríkið fái yfir 100 milljarða króna fyrir allan hlut sinn í Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, telur æskilegt að hægt verði að kaupa hlut í Íslandsbanka fyrir nokkra tugi þúsunda.

Þetta kom fram á netfundi efnahags- og viðskiptanefndar Sjálfstæðisflokksins með Bjarna í gær en fjallað er um málið í Morgunblaðið í dag.

Bjarni segir í samtali við Morgunblaðið að Bankasýsla ríkisins skoði þessa hlið málsins. Lægri þröskuldur muni auka almenna þátttöku í hlutafjárútboði sem ráðist verður í til að selja hluta af eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra, var gestur á hádegisnetfundi...

Posted by Sjálfstæðisflokkurinn on Monday, February 1, 2021

Ríkið er eini eigandi Íslandsbanka og stefna stjórnvöld að því að selja allt að 35 prósenta hlut í bankanum á þessu ári.

Bjarni segir við Morgunblaðið að horft sé til þess að framkvæma útboðið um mánaðamótin maí/júní. Júní sé þó líklegri en þetta skýrist á næstu vikum.

„Við erum að leitast við að bankinn fari í dreifða eign við söluna. Svo er ég líka að vonast til að með lækkandi vöxtum og fleiri fjárfestingarkostum haldi sú þróun áfram að fleiri taki þátt á hlutabréfamarkaði og að hér sé kominn fram kostur sem geti stutt þá þróun,“ segir Bjarni.

Þá kveðst hann vonast til þess að fá að minnsta kosti jafn mikið fyrir allan hlut ríkisins í bankanum og nemur 119 milljarða króna fjárfestingu til þess að örva efnahagslífið í kreppunni sem fylgt hefur kórónuveirufaraldrinum.

„Ég held að það sé alveg óhætt að segja að þar sem bankinn er með tæplega 190 milljarða eigin fé í dag hljótum við að hafa væntingar til þess, þegar allur bankinn hefur verið seldur, að við fáum að minnsta kosti fjárhæð sem jafngildir þessu átaki. Þá dregur það úr lánsfjárþörf sem nemur slíkum fjárhæðum,“ segir Bjarni í Morgunblaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×