Besti súmóglímukappi Japans greinist með Covid-19 Atli Ísleifsson skrifar 5. janúar 2021 08:24 Hakuho er besti súmóglímukappi Japans um þessar mundir. Hér er hann á Nýársmótinu í Tókýó á síðasta ári. Getty Japanski súmóglímukappinn Hakuho, sem er efstur á styrkleikalista Súmóglímusambandsins þar í landi, hefur greinst með Covid-19. Meistarinn, sem á rætur að rekja til Mongólíu, fór í sýnatöku eftir að hafa misst lyktarskyn sitt.
Fréttirnar af veikindum Hakuho koma á sama tíma og japönsk stjórnvöld eru sögð íhuga að lýsa yfir neyðarástandi í og í nágrenni höfuðborgarinnar Tókýó þar sem faraldurinn er nú í mikilli uppsveiflu. Segir forsætisráðherrann Yoshihide Suga að ákvörðun muni liggja fyrir á fimmtudag. Japanir hafa í samanburði við margar aðrar þjóðir ekki gripið til harðra takmarkana þar sem skráð smit hafa verið hlutfallslega færri en víða annars staðar. Súmóglíma hefur þannig áfram verið heimil frá því að heimsfaraldurinn braust út, þó að smit hafi einnig komið upp innan íþróttarinnar. Þannig var í maí greint frá því að 28 ára súmóglímukappi hafi látist í kjölfar Covid-veikinda. Hakuho var í fullum undirbúningi fyrir stórmót, Nýársmótið í súmóglímu, sem á að hefjast í Tókýó á sunnudag, þegar hann greindist. Aðrir glímukappar í æfingahóp Hakuho munu nú allir fara í sýnatöku til að kanna hvort þeir hafi einnig smitast af kórónuveirunni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Japan Mest lesið Tveir reyndust í skotti bíls Innlent Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Innlent Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Innlent Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Innlent Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Innlent Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Innlent Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Innlent Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Innlent Engum verði vísað út við myndbirtingu Erlent Fleiri fréttir Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Sjá meira