Real Madrid ekki í vandræðum með Celta Vigo

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Þessir sáu um Celta Vigo
Þessir sáu um Celta Vigo vísir/Getty

Spánarmeistarar Real Madrid fengu Celta Vigo í heimsókn í síðasta leik dagsins í spænsku úrvalsdeildinni.

Madridingar tóku öll völd á vellinum snemma leiks og komust raunar í forystu strax á sjöttu mínútu þegar Lucas Vazquez skoraði eftir undirbúning Marco Asensio.

Þeir félagar skiptu svo um hlutverk í upphafi síðari hálfleiks þegar Vazquez lagði upp mark fyrir Asensio.

Fleiri urðu mörkin ekki, öruggur 2-0 sigur Real Madrid staðreynd sem lyftir þeim upp í efsta sæti deildarinnar en nágrannar þeirra í Atletico Madrid eiga hins vegar þrjá leiki til góða í 2.sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira