Viðskipti innlent

Hagnaður þrátt fyrir snarpa fækkun ferðamanna

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Farþegum um flugvelli Isavia fækkaði um 25 prósent á milli áranna 2018 til 2019.
Farþegum um flugvelli Isavia fækkaði um 25 prósent á milli áranna 2018 til 2019.

Þrátt fyrir að rekstrartekjur Isavia hafi lækkað um 3,3 milljarða króna milli ára og afkoma félagsins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBIDTA) lækkað um tæpa fjóra og hálfan milljarð var jákvæð afkoma af rekstri Isavia í fyrra. Hagnaður samstæðunnar nam næstum 1,2 milljörðum króna árið 2019, sem er um 72 prósent lækkun frá fyrra ári, á sama tíma og eigið fé Isavia jókst um 3,4 prósent og eiginfjárhlutfallið batnaði. Þetta er meðal þess sem má lesa úr nýrri ársskýrslu félagsins.

Fjöldi farþega um flugvelli Isavia var í heild rúmlega 7,9 milljónir í fyrra. Það er um 25% minnkun frá árinu 2018. Millilandafarþegum um íslenska áætlunarflugvelli fækkaði úr rúmlega 9,8 milljónum í tæplega 7,3 milljónir, eða um 26% milli ára. Innanlandsfarþegum fækkaði á sama tíma úr tæplega 737 þúsund í rúmlega 650 þúsund, eða um tæp 11%.

Þarna spilar fall WOW air og kyrrsetning Boeing 737 MAX-þota Icelandair rullu. „Allt hafði þetta mikil áhrif á fjölda farþega og þannig á rekstur samstæðu Isavia,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í tilkynningu sem send er út vegna ársskýrslunnar.

„Nú stöndum við frammi fyrir heimsfaraldri af völdum Covid-19-veikinnar, og það er gríðarmikil óvissa með framhaldið. Það eina sem við vitum er að áhrifin verða mikil. Fjárhagsleg staða félagsins er sterk en það er ljóst að við, eins og önnur fyrirtæki, þurfum að bretta upp ermarnar til að komast heil í gegnum þessa erfiðleika.“

Hér má nálgast lykiltölur úr rekstri Isavia í fyrra en hér má nálgast ársskýrslu Isavia í heild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×