Menning

Bein út­­sending: Heima­helgi­­stund í Linda­kirkju

Tinni Sveinsson skrifar
Sólsetur við Lindakirkju. Sóknarpresturinn sr. Guðmundur Karl Brynjarsson leiðir heimahelgistund frá kirkjunni í beinni útsendingu klukkan 17 í dag.
Sólsetur við Lindakirkju. Sóknarpresturinn sr. Guðmundur Karl Brynjarsson leiðir heimahelgistund frá kirkjunni í beinni útsendingu klukkan 17 í dag. Vísir/Vilhelm

Í dag klukkan 17 verður heimahelgistund streymt heim til landsmanna frá Lindakirkju.

Eins og svo margt annað fellur allt messuhald og fermingar í Þjóðkirkjunni niður í vor vegna samkomubannsins og faraldurs kórónuveiru.

Á meðan á þessu stendur ætlar kirkjan að koma til heimila þess fólks sem getur ekki heimsótt hana og er hægt að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi.

„Meðan samkomubann ríkir viljum við færa þjóðkirkjuna og hennar starf heim í stofu. Fólk getur átt þá hugleiðslu, bæn og kyrrð sem það annars myndi eiga í kirkjunni, heima hjá sér. Kirkjan hefur miklar skyldur gagnvart þjóðinni og þetta er ein leiðin til þess að uppfylla þær. Þrjár kirkjur ríða á vaðið, Laugarneskirkja, þá Lindakirkja og svo Vídalínskirkja, framhaldið spilum við svo eftir eyranu eftir því hvernig málin þróast,“ segir Pétur G. Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu. Formið á helgistundunum svipar til messu, með hugvekju, bæn og tónlist, en er þó knappara, eða 25 til 30 mínútur.

Klippa: Heimahelgistund í Lindakirkju

Sóknarpresturinn sr. Guðmundur Karl Brynjarsson sér um stundina í dag og flytur hugvekju.

Kórsystkinin úr Kór Lindakirkju, Arnar Dór Hannesson, Guðrún Óla Jónsdóttir, og Áslaug Helga Hálfdánardóttir syngja ásamt Óskari Einarssyni, tónlistarstjóra sem spilar á píanó og Páll Elvar Pálsson plokkar bassann.

Næsta sunnudag verður heimahelgistund streymt frá Vídalinskirkju í Garðabæ. Einnig verður hægt að horfa á hana hér á Vísi.


Tengdar fréttir

Heima-helgistundir í beinni á Vísi næstu sunnudaga

Heima-helgistundum á vegum þjóðkirkjunnar verður streymt hér á Vísi næstu fjóra sunnudaga. Fyrsta útsendingin verður frá Laugarneskirkju klukkan 17 á morgun, sunnudaginn 22. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.