Algeng mistök á fjarfundum Rakel Sveinsdóttir skrifar 30. mars 2020 09:00 Dæmi um algeng mistök á fjarfundum mátti sjá í þætti Gísla Marteins á RÚV um síðustu helgi þegar ráðherrarnir Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson mættu sem gestir í gegnum fjarfundarbúnað. Skjámynd RÚV
Dæmi um algeng mistök á fjarfundum mátti sjá í þættinum Vikan með Gísla Marteini á RÚV síðastliðinn föstudag. Gísli fékk til sín þrjá ráðherra í myndviðtal, þau Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Sigurð Inga Jóhannsson samgöngu- og sveitastjórnarráðherra. Ráðherrarnir þrír birtust samtímis á skjánum og náðu hvert um sig að birta sýnishorn af því hvað ber að varast á fjarfundum. Mistök Katrínar voru þau að hjá henni var of dimmt. Mistök Bjarna voru þau að aðeins helmingurinn af andlitinu hans sást í mynd því hann sat ekki rétt fyrir framan myndavélina. Hjá Bjarna var líka aðeins of dimmt enda gluggi fyrir aftan hann. Sigurður Ingi var með birtuna rétta en horfði ýmist upp í loftið, hreyfði sig, tók af sér gleraugun og fleira til viðbótar við að vera með truflun í bakgrunni (hesta). Til að forðast algengustu mistökin á fjarfundum er ágætt að styðjast við myndbönd og við látum því nokkur skemmtileg fylgja hér með til leiðbeiningar. Heimaskrifstofan Í þessu myndbandi fer William Hanson yfir nokkur atriði sem gæta þarf sérstaklega að á heimaskrifstofum. Atriði sem þarf að gæta að sérstaklega eru: 1. Að tengingin sé góð 2. Að birtan sé góð 3. Að umhverfið sé látlaust. Mælt er með því að umhverfi heimaskrifstofunnar sé þannig að ekkert í bakgrunni hafi truflandi áhrif á aðra fundargesti 4. Að hljóðið sé gott þannig að aðrir fundargestir heyri vel það sem þú segir 5. Að sjónlínan við myndavélina sé rétt. Hér þarf að miða við að augun og myndavélin séu í sjónlínu 6. Gæludýrin eiga ekki að vera með á fundum 7. Vertu með athyglina á fundinum. Ekki vera til dæmis í símanum eða kíkja á eitthvað á netinu 8. Fatnaðurinn þarf að vera við hæfi. Makinn, börnin, gæludýrin og fleira Hér er mjög skemmtilegt myndband frá FastCompany sem sýnir hvaða atriði þarf að forðast þegar fólk er á fjarfundum heiman frá, án þess að vera með sérstaka heimaskrifstofu eða aðstöðu til að vera í næði. Eins og sjá má í myndbandinu er mikilvægt að velja staðsetningu fundarins vel á heimilinu, áður en fundur hefst. Staðsetningin þarf ekki síst að vera góð með tilliti til birtu. Margir hafa til dæmis flaskað á því atriði að vera með glugga í bakgrunni. Til að forðast truflun eða neyðarlegar uppákomur þarf líka að undirbúa eða taka tillit til annarra fjölskyldumeðlima, s.s. maka, börn og gæludýr. Hér er líka bent á að á fjarfundum er ekki ætlast til þess að fólk sé að gera eitthvað annað á meðan. Loks er fólk minnt á að slökkva á myndavélinni. Fjarfundir geta orðið mjög neyðarlegir Í þessu myndbandi er rækilega bent á það hvað getur gerst á fjarfundum ef fólk gleymir því að myndavélin er á. Því mikilvægt að slökkva á myndavélinni eða hafa hana úr sjónmáli, þegar samstarfsfélögunum er ekki ætlað að sjá eitthvað.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Fjarvinna Mest lesið Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Viðskipti innlent Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi Samstarf Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Betra en ekki að viðurkenna mistökin Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Hafa þróað kerfi til að auka á gagnsæi viðskipta með kolefniseiningar „Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Óöryggi, feimni og jafnvel einmanaleiki í nýju sumarvinnunni Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Níu manns sagt upp hjá Veitum Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Að sækja um starf eftir uppsögn Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur Að standa upp til að gera eitthvað og muna síðan ekkert hvað það var „Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“ Ekkert einkamál: Áhrif vinnustaða á geðheilsu jafn stór og makans „Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“ „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Sjá meira