Tekur við starfi safnstjóra Listasafns Einars Jónssonar Atli Ísleifsson skrifar 23. mars 2020 10:38 Alma Dís Kristinsdóttir. Mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Alma Dís Kristinsdóttir hefur verið ráðin til að taka við starfi safnstjóra Listasafns Einars Jónssonar. Hún tekur við starfinu þann 1. maí næstkomandi. Í tilkynningu á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins kemur fram að Alma Dís hafi lokið doktorsprófi í safnafræði frá Háskóla Íslands 2019. „Hún er með mastersgráðu í menntunarfræðum og BFA próf í hönnun frá Massachussetts College of Art í Boston. AlmaDís starfar sem verkefnastjóri safnfræðslu hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur og sinnir kennslu í deild Félags-, mann- og þjóðfræði við Háskóla Íslands. Hún var áður forstöðumaður Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi. Þá starfaði hún sem verkefnastjóri við Listasafn Reykjavíkur um árabil, vann einnig við Listasafnið á Akureyri og Denver Art Museum í Colorado í Bandaríkjunum.“ Viðfangsefni safnsins er að rannsaka, varðveita og miðla verkum Einars Jónssonar myndhöggvara og þeim menningararfi sem tengist lífi hans og list. „Safnið er til húsa í Hnitbjörgum á Skólavörðuholti og samanstendur af sýningarsölum á tveimur hæðum, íbúð listamannsins í turni hússins og höggmyndagarði með 26 afsteypum af verkum hans. Listasafnið er hið fyrsta sem opnað var almenningi hér á landi árið 1923 og er því einstakt í sögulegu tilliti,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Reykjavík Söfn Mest lesið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Fannst eins og hann væri eini fulli í brekkunni fyrir hádegi Lífið Helvítis kokkurinn: Gómsætar grillaðar lambakótelettur Lífið Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Lífið Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira