Viðskipti innlent

Jákvæður í garð tillögu um að hefja söluferli Íslandsbanka

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Bankasýsla ríkisins hefur á ný mælst til þess að fjármálaráðherra hefji söluferli Íslandsbanka.
Bankasýsla ríkisins hefur á ný mælst til þess að fjármálaráðherra hefji söluferli Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm

Fjármálaráðherra er jákvæður í garð tillögu Bankasýslunnar um að hefja söluferli á Íslandsbanka. Það sé mikilvægt að draga sig út úr rekstrinum bæði vegna áhættu og til að tryggja samkeppni og fjölbreytt eignar hald.

Í bréfi sem Bankasýsla ríkisins sendi Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra var lagt til að eignarhlutur í Íslandsbanka verði auglýstur til sölu að ákjósanlegast væri að söluferlinu yrði lokið á fyrri helmingi næsta árs. Bankinn verði skráður á markað í kjölfar útboðs.

Bankasýslan lagði fram sambærilega tillögu í vor en hún var dregin til baka vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Bjarni var að loknum ríkisstjórnarfundi spurður út í tillöguna en hún var rædd á fundinum.

„Mér líst ágætlega á hana. Við höfum haft það svo sem á prjónunum frá því ríkisstjórnin var mynduð að draga úr eignarhlut ríkisins í fjármálakerfinu. Hann er sá mesti í Evrópu. Ekkert annað þjóðríki á jafn stóran hlut í sínu fjármálakerfi og íslenska ríkið og ég held að aðstæður hafi verið að þróast vel á þessu ári eða frá því Bankasýslan féll frá því að leggja þetta til vegna Covid faraldursins þá hefur ýmislegt gerst, íslenska hlutabréfavísitalan hefur farið upp um 50%, bankar í Evrópu hafa verið að hækka um rúmlega 30%.“

Það sé fjölmargt sem mæli með skráningu bankans á markað á þessum tímapunkti.

„Ég held að það sé líka mikilvægt í öðru samhengi að ríkið dragi sig út úr þessum rekstri, bæði vegna áhættu og eins til að tryggja eðlilega samkeppni og fjölbreyttara eignarhald á íslenskum fjármálamarkaði og að lokum þá kemur það sé vel fyrir ríkissjóð við þessar aðstæður, hér er banki sem er með um hundrað og áttatíu milljarða í eigið fé.“

Hann telji að söluandvirðið sé í kringum 140 milljarða miðað við markaðsvirði annarra banka.

„Það á svo sem eftir að skýrast allt saman í þessu ferli sem verður þá lagt af stað með núna.“

Aðspurður sagði Bjarni að ekki væri tímabært að úttala sig um stærð þess eignarhlutar sem hann vill selja en á fyrri stigum hafi verið horft til um fjórðungshlutar. Á lengra tímabili sjái Bjarni þó fyrir sér að ríkið losi um allan sinn hlut.

„Ég held að það séu góðar líkur á að þetta geti tekist með ágætum stuðningi. Og ég held að það sé stuðningur við það líka í samfélaginu að ríkið eigi ekki að vera leiðandi eigandi að stóru fyrirtækjunum í fjármalarekstri á Íslandi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×