Lífið

Hellisbúa Carpaccio að hætti BBQ kóngsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alfreð er algjör kóngur á grillinu.
Alfreð er algjör kóngur á grillinu.

Grindvíkingurinn Alfreð Fannar Björnsson er án efa mesti dellumaður landsins, tekur allt með trompi hvort sem það snýr að veiðinni, bílasprautun eða öðru.

Og er nýjasta æðið hans að grilla. Og þá þýðir ekkert að eiga eitt grill, heldur á Alfreð sex grill en Alfreð verður með tvo sérstaka jólagrillþætti á Stöð 2 í aðdraganda jólanna.

Annar þátturinn var í vikunni og fór BBQ kóngurinn sjálfur um víðan völl. Þar fór Alfreð meðal annars yfir það hvernig reiðir fram það sem hann kallar Hellisbúa Carpaccio og fleira eins og sjá má hér að neðan. Þar má einnig sjá allar uppskriftirnar úr þætti gærkvöldsins.

Klippa: Hellisbúa Carpaccio

Hellisbúa Carpaccio

Hráefni:

Nautalund

Klettasalat

Parmesan ostur

Salt

Truffluolía

Djúpsteikt hvítlaukskurl. Einnig hægt að nota eitthvað stökkt eins og ristaðar furuhnetur

Djúpsteiktir jarðskokkar (má sleppa en gefur rosa gott bragð og lítur rosa vel út á diski.)

1. Skerið jarðskokka í þunnar sneiðar og djúpsteikið í olíu þar til stökkir

2. Nautalund sett beint á harðviðarkol ca 10 sekúndur á hlið til að fá gott bragð

3. Skerið niður í eins þunnar sneiðar og þið treystið ykkur til og fletið sneiðarnar út með því að berja þær með krepptum hnefa.

4. Raðið sneiðunum á fallegan disk, saltið og stráið truffluolíu yfir

5. Klettasalati dreift yfir ásamt rifnum parmesan osti

6. Að lokum stráið þið djúpsteikta hvítlaukskurlinu og jarðskokkunum yfir

Smjörpennsluð svína kóróna með grilluðu broccolini, pikkluðu rauðkáli og einföldu rauðlauks klettasalati:

Hráefni:

2X svínafille með bein. Bundið saman svo það myndi kórónu.

Marenering:

3 msk Oregano

3 msk Papríkuduft

1 tsk Gróft salt

Tveir hvítlauksgeirar

4msk ólífuolía

Kryddsmjör:

60 gr smjör

1 msk BBQ krydd - Einnig hægt að krydda smjörið með ykkar uppáhalds kryddblöndu

Meðlæti:

Broccolini

Klettasalat

Hálfur rauðlaukur

SPG – kryddblanda með salti, pipar og ristuðum hvítlauk

Ólífuolía

Pikklað rauðkál

Aðferð:

1. Hitið grillið upp í 130 gráður

2. Hrærið saman oregano, papríkudufti, grófu salti og ólífuolíu í skál og smyrjið á kjötið

3. Stingið kjöthitamæli í kjötið og eldið það upp í 62 gráður á óbeinum hita

4. Útbúið kryddsmjörið og smyrjið kjötið reglulega á meðan eldun stendur

5. Setjið broccolini í poka og hellið ólífuolíu yfir og kryddið vel með SPG kryddblöndunni. Grillið þar til smá brennt og stökkt

6. Blandið saman klettasalati og hálfum þunnt skornum rauðlauk í skál og hellið ólífuolíu yfir og kryddið með smá SPG

7. Berið kjötið fram á fallegum viðarplatta með pikkluðu rauðkáli, rauðlauks klettasalati og broccolini

Úrbeinað lambalæri með granatepla og myntu salsa ásamt einfaldri hvítlaukssósu

Hráefni:

Úrbeinað lambalæri

Marenering:

150ml Granatepla molasses

8 myntulauf fínt skorin

Safi úr hálfri sítrónu

2 tsk sykur

Tveir hvítlauksgeirar fínt saxað

Ólífuolía

1 msk SPG kryddblanda með salti, pipa rog grófum ristuðum hvítlauk.

Granatepla salsa:

1/3 af mareneringunni

6 myntulauf fínt skorin

100 gr granatepla fræ

Lítil agúrka skorin í sömu stærð og fræin úr granateplinu

Safi úr hálfri sítrónu

Ofur einföld hvítlaukssósa:

4 msk sýrður rjómi

2 msk majónes

1 tsk hunang eða eftir smekk

Fínt skorin hvítlauksgeiri

Smakkið til með SPG

Aðferð:

1. Hitið grillið í 250 gráður

2. Blandið saman granatepla molasses, fínt söxuðum myntulaufum, safa úr sítrónu, sykri, hvítlauk og ólífuolíu í skál og smyrjið á kjötið. Látið standa í 20 mínútur eða yfir nótt. Gætið þess að geyma 1/3 af mareneringunni fyrir salsa sósuna

3. Brúnið kjötið vel og snúið nokkrum sinnum. Færið það yfir í óbeinan hita og eldið þar til kjötið nær 62 gráðum í kjarnhita. Þar sem það er mikill sykur í mareneringunni þá brennur kjötið auðveldlega en mér finnst það bara gefa betra bragð

4. Blandið saman 1/3 af mareneringunni, myntulaufum, granatepla fræjum, agúrku og safa úr sítrónu í skál.

5. Blandið saman sýrðum rjóma, majónesi, hvítlauknum, hunangi og SPG í skál

6. Berið fram lærið á fallegum viðarplatta og setjið salsað yfir ásamt hvítlaukssósunni

Blaut súkkulaði kaka á steypujárnspönnu með kaffilíkjörsrjóma

150 gr. bráðið smjör

3 dl sykur

1 dl kakó

2 tsk vanillusykur

2 egg

2 dl hveiti

Flórsykur til skreytingar

Kaffilíkjörsrjómi

Þeyttur rjómi

Smakkið til með kaffilíkjör

Aðferð

1.Hitið grillið upp í 200 gráður

2.Setjið smjörið á steypujárnspönnu og bræðið á grillinu

3.Blandið saman öllum þurrefnum nema hveitinu ásamt einu eggi

4.Hrærið vel og bætið svo öðru eggi út í og hrærið vel. Bætið svo hveitinu út í og veltið smjörinu vel um á pönnunni svo kakan festist síður við pönnuna. Hellið smjörinu út í degið en passið að smjörið sé ekki of heitt.

5.Blandið vel saman og hellið deiginu í smurða steypujárnspönnuna og dreifið vel úr

6.Bakið kökuna á 200 gráðu heitu grillinu við óbeinan hita í 10-15 mínútur. Fylgist vel með kökunni og gætið þess að kakan sé mjúk í miðjunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.