Erlent

Öllum skólum og flestum verslunum í Hollandi lokað

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Verslunargötur og búðir hafa verið troðfullar af fólki í Hollandi þrátt fyrir strangar sóttvarnaaðgerðir.
Verslunargötur og búðir hafa verið troðfullar af fólki í Hollandi þrátt fyrir strangar sóttvarnaaðgerðir. Getty/ Niels Wenstedt

Yfirvöld í Hollandi hafa boðað hertari aðgerðir til þess að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Þetta verður í annað sinn sem svo harðar aðgerðir eru teknar í gildi en nú verður öllum skólum og verslunum lokað í minnst fimm vikur.

„Holland er að loka,“ sagði Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands í sjónvörpuðu ávarpi í dag. Mótmælendur höfðu safnast saman fyrir utan skrifstofu hans í Haag í dag og mátti heyra í trommuslættinum í ávarpinu. „Við skiljum vel hvað aðgerðirnar eru strangar, svona rétt fyrir jól.“

Aðgerðirnar fela meðal annars í sér að hvergi mega fleiri en tveir koma saman, meira að segja inni á heimilum. Undantekning verður gerð á reglunni í þrjá daga yfir jól, en þá mega þrír fullorðnir koma saman.

Fólki verður gert að halda sig heima, það er beðið um að ferðast ekki til vinnu og forðast samskipti við annað fólk eins og mögulegt er. Rutte bað jafnframt fólk um að fresta öllum alþjóðlegum ferðalögum þar til 15. mars.

Frá og með morgundeginum, þriðjudag, verður öllum almenningssvæðum lokað. Þar á meðal eru leikskólar, líkamsræktarstöðvar, söfn, dýragarðar, kvikmyndahús, hárgreiðslustofur og snyrtistofur. Lokanirnar eru í gildi þar til 19. janúar næstkomandi. Skólar verða lokaðir til 18. janúar.

Undanskilin aðgerðunum eru apótek, matvöruverslanir og bankar.

Í gær greindust 8500 smitaðir af veirunni og daginn áður 10 þúsund. Smitin hafa ekki verið fleiri í rúmar sex vikur. Frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á hafa meira en 600 þúsund manns smitast og 10 þúsund látist af völdum veirunnar.


Tengdar fréttir

Hert á takmörkunum víða um Evrópu

Tékkar ætla að loka stórum hluta samfélagsins næstu þrjár vikurnar til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Fleiri þjóðir boða hertar reglur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×