Innlent

Mikill viðbúnaður sérsveitar og lögreglu á Akureyri

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Lögreglubílum lagt fyrir utan húsið við Ásatún nú á þriðja tímanum.
Lögreglubílum lagt fyrir utan húsið við Ásatún nú á þriðja tímanum. Vísir

Lögregla á Akureyri ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra handtók mann í fjölbýlishúsi við Ásatún á Akureyri eftir umsátur á þriðja tímanum í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á Norðurlandi eystra var maðurinn, sem er íbúi í húsinu, í ójafnvægi og lét ófriðlega. Fréttamaður á vettvangi lýsir því að lögreglumenn hafi farið inn í íbúð mannsins um klukkan hálf þrjú og yfirbugað hann. Hann var svo færður í lögreglubíl. Umsátrið stóð yfir í um tvo klukkutíma.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu sem send var út á fjórða tímanum að lögregla hafi verið kölluð út að húsinu vegna hávaða frá pari og gruns um heimilisofbeldi. Þegar lögreglan kom á vettvang var konan komin út úr íbúðinni en maðurinn var enn innandyra. Hann hafi haft í hótunum við lögreglumenn, mjög æstur og talinn vera í annarlegu ástandi. 

„Skorað var á hann að gefa sig fram við lögreglu en hann neitaði því staðfastlega. Eftir frekari samskipti við manninn mat lögregla aðstæður þannig að ekki væri unnt að skilja hann eftir einan í þessu ástandi. Tryggja yrði öryggi hans og annarra í húsinu. Eftir árangurslausar samningaviðræður við manninn, fór sérsveit Ríkislögreglustjóra inn í íbúðina og handtók hann kl. 14:24,“ segir í tilkynningu.

Um hádegisbil í dag var lögreglan kölluð að fjölbýlishúsi á Akureyri vegna hávaða frá pari og gruns um heimilisofbeldi....

Posted by Lögreglan á Norðurlandi eystra on Föstudagur, 11. desember 2020

Nokkur viðbúnaður var á vettvangi meðan á þessu stóð og húsið girt af. Engan sakaði í aðgerð lögreglu, sem fer nú með rannsókn málsins.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×