Mæla gegn bólusetningu þeirra sem þjást af alvarlegum ofnæmum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. desember 2020 15:03 Bólusetningar gegn Covid-19 hófust í Bretlandi í gær. epa/Ben Birchall Bresk lyfjaeftirlitsyfirvöld hafa varað einstaklinga sem þjást af alvarlegum ofnæmum frá bólusetningu með bóluefni Pfizer og BioNTech gegn Covid-19.
Tilmælin voru gefin út eftir að tveir heilbrigðisstarfsmenn sýndu ofnæmisviðbrögð eftir að hafa fengið bóluefnið í gær. Þau ná til þeirra sem hafa fengið alvarlegt ofnæmi eftir að hafa neytt matar eða lyfja, eða verið bólusettir með öðrum bóluefnum. Einstaklingarnir sem sýndu ofnæmi eftir að hafa fengið Pfizer/BioNTech bóluefnið eru sagðir hafa sýnt svokölluð „anaphylactoid“ viðbrögð, sem BBC segir meðal annars felast í útbrotum, öndunarþyngslum og í sumum tilvikum blóðþrýstingsfalli. Ekki er um að ræða sama ástand og „anaphylaxis“, það er að segja bráðaofnæmi eða ofnæmislost, sem getur valdið dauða. Fólkið er sagt hafa náð sér en báðir einstaklingar höfðu áður sýnt alvarleg ofnæmisviðbrögð og gengu með adrenalínpenna á sér. Haft er eftir Stephen Powis, framkvæmdastjóra lækninga hjá bresku heilbrigðisþjónustunni, að um sé að ræða algeng viðbrögð við nýjum bóluefnum og að tilmælin væru öryggisráðstöfun. Í prófunum á bóluefninu sýndi einn af hverjum þúsund einstaklingum ofnæmisviðbrögð en mörg þúsund manns voru bólusettir í Bretlandi í gær. Peter Openshaw, prófessor í ónæmisfræðum við Imperial College London, segir þá staðreynd að vitneskja liggi þegar fyrir um tilvikin tvö og að tilmælin hafi verið gefin út sýni að eftirlit með bólusetningaferlinu sé að virka.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira