Erlent

Maður hand­tekinn vegna dauða ellefu ára stúlku á Græn­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Aasiaat á vesturströnd Grænlands.
Aasiaat á vesturströnd Grænlands. Getty

Lögregla á Grænlandi hefur handtekið 27 ára karlmann vegna gruns um að hafa drepið ellefu ára stúlku í Aasiaat á vesturströnd landsins aðfaranótt föstudagsins í síðustu viku.

Stúlkan fannst látin í tröppum á mótum KJ Greenland og Wille Brandtsvej í Aasiaat.

Síðast hafði sést til stúlkunnar um klukkan 20 á fimmtudagskvöldinu þegar hún lagði af stað heim frá vinkonu sinni.

Héraðsdómur í Qaasuitsoq hefur nú úrskurðað manninn í fjögurra vikna gæsluvarðhald.

Í frétt Sermitsiaq.AG segir að lögregla geti ekki veitt frekari upplýsingar um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×