Loftárásir Ísraela eftir eldflaugarárás Palestínumanna Kjartan Kjartansson skrifar 22. nóvember 2020 10:16 Ísraelsk herþota. Myndin er úr safni. Vísir/EPA
Ísraelski herinn gerði loftárásir á Gasaströndinni eftir að herskáir Palestínumenn skutu eldflaugum inn í Ísrael í gærkvöldi. Engan sakaði í árásunum en lögreglan í Ísrael segir að verksmiðja í borgini Ashkelon hafi skemmst þegar hún varð fyrir palestínsku eldflauginni. Sjónarvottar sem Reuters-fréttastofan ræddi við sögðust hafa séð ísraelsk flugskeyti hæfa nokkra staði í Gasaborg og í Rafah og Khan Younis á sunnanverðri Gasaströndinni fyrir sólarupprás í morgun. Logar og reykur steig upp á nokkrum stöðum. Talsmenn ísraelska hersins fullyrða að loftárásirnar hafi beinst að eldflaugaverksmiðjum Hamas-samtakanna sem fara með völdin á Gasa, neðanjarðarbirgi og þjálfunarbúðum, að sögn AP-fréttastofunnar. Enginn hópur hefur enn lýst yfir ábyrgð á eldflaugunum sem var skotið frá Gasaströndinni í gærkvöldi en Ísraelar skella skuldinni á Hamas. Ísraelsher og samtökin háðu stríð árið 2014 en minni skærur hafa átt sér stað síðan. Tiltölulega friðsamlegt hefur þó verið á Gasa undanfarna mánuði.
Ísrael Palestína Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Innlent Fleiri fréttir Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu Sjá meira