Hamrén finnur til með ungverska þjálfaranum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2020 16:03 Erik Hamrén á blaðamannafundinum í dag. Skjámynd/Vísir
Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, var spurður út í fjarveru ungverska landsliðsþjálfarans á blaðamannafundi í dag. Ítalinn Marco Rossi, sem er þjálfari ungverska landsliðsins, má ekki taka þátt í leiknum á morgun. Marco Rossi er með kórónuveiruna og því kominn í einangrun eins og aðstoðarþjálfarinn hans. „Ég finn auðvitað til með honum. Staðan er slæm í heiminum og það er leiðinlegt fyrir hann að missa af þessum leik. Það er líka alltaf gott að geta tekið í höndina á hinum þjálfaranum fyrir og eftir leik,“ sagði Erik Hamrén. „Við ætlum að einbeita okkur að okkar hlutum,“ sagði Hamrén. Hann var heldur ekki tilbúinn að segja ungversku blaðamönnunum frá því hvað hann telur vera veikleika ungverska liðsins.„Við teljum okkur vita um þá en ég ætla ekki að segja frá því hér. Við verðum bara að sjá hvort við höfum rétt fyrir okkur á morgun,“ sagði Hamrén. Hamrén segir að áhorfendaleysið skipti ekki sköpum. Allir leikmenn eru vanir þessum aðstæðum. Hann segir að Ungverjaland sé með gott lið sem hafi staðið sig vel í Þjóðadeildinni. Býst við erfiðum leik á morgun.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Fótbolti Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Enski boltinn Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Sjá meira