Innlent

Þrír létust á Landspítala vegna Covid-19

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Alls hafa nú 23 látist vegna Covid-19 hér á landi.
Alls hafa nú 23 látist vegna Covid-19 hér á landi.

Þrír sjúklingar létust á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Frá þessu er greint á vef Landspítalans í morgun.

Aðstandendum hinna látnu er vottuð samúð í tilkynningu spítalans.

Alls hafa því 23 látist vegna Covid-19 hér á landi frá upphafi kórónuveirufaraldursins í lok febrúar.

Tíu létust í fyrstu bylgju faraldursins síðasta vetur og þréttán hafa látist í þeirri bylgju sem nú gengur yfir.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×