Segir sjö lið eiga möguleika á Englandsmeistaratitlinum Arnar Geir Halldórsson skrifar 8. nóvember 2020 12:31 Ederson vísir/Getty
Brasilíski markvörðurinn Ederson mun standa í ströngu í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar Manchester City og Liverpool munu eigast við á Etihad leikvangnum í Manchester. Flestir spekingar telja að þessi tvö lið séu þau einu sem eigi möguleika á að vinna deildina enda höfðu þau töluverða yfirburði á síðustu leiktíð þar sem Liverpool hafði að lokum betur. Ederson hefur varið mark Man City frá árinu 2017 og reiknar með harðari baráttu en nokkru sinni fyrr á toppi deildarinnar. „Þetta er ekki venjulegt tímabil. Öll sex stóru félögin hafa byrjað vel. Aston Villa, Everton og Southampton hafa einnig sýnt góða frammistöðu í byrjun. Þessi lið hafa marga gæðaleikmenn,“ segir Ederson. „Þetta tímabil verður öðruvísi og keppnin verður jafnari. Ég held að baráttan um titilinn verði ekki á milli tveggja liða heldur sex eða sjö liða.“ Hann segir leikmenn Man City gera sér grein fyrir mikilvægi leiksins í dag en Liverpool hefur fimm stigum meira en Man City. Síðarnefnda liðið á þó leik til góða og getur komið sér í góða stöðu gagnvart Liverpool með sigri í dag. „Þetta er leikurinn sem allir hafa beðið eftir, leikmenn og stuðningsmenn. Ég held að þetta verði mjög góður leikur. Við vitum að þeir eru nokkrum stigum á undan okkur en við eigum leik til góða og við þurfum góð úrslit til að minnka bilið,“ segir Ederson.
Enski boltinn Mest lesið Hópurinn gegn Grikkjum: Nítján ára nýliði í markinu Handbolti Ung skíðaskotfimikona lömuð eftir slys á æfingu Sport Jón Otti körfuboltadómari fallinn frá Körfubolti Dóttirin líkamssmánuð: „Þetta eru meiri trúðarnir“ Sport Svona var blaðamannafundur Snorra Handbolti Draumaprinsinn Benoný: „Kannski sá besti hérna í að klára færin“ Enski boltinn Littler var reiður: „Tap Man. Utd kveikti á mér“ Sport Bjóða skaðabætur vegna þess að hitt liðið var án Messi Fótbolti Einn sá allra besti á Íslandi samdi við sænsku meistarana Handbolti Man. United má ekki nota unga framherjann sinn í Evrópudeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Man. United má ekki nota unga framherjann sinn í Evrópudeildinni Amorim: „Ég er ekki barnalegur“ Kvartar undan boltanum eftir tuttugu skot framhjá Draumaprinsinn Benoný: „Kannski sá besti hérna í að klára færin“ Stefán Teitur og félagar mæta Aston Villa Hamrarnir hentu frá sér tveggja marka forystu gegn Arsenal Chelsea tapaði óvænt stigum á meðan Hlín tapaði fyrir Rauðu djöflunum Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Welbeck skaut Brighton áfram Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Mateta líður vel þrátt fyrir tæklingu í andlitið Man City sterkari í síðari hálfleik og komið áfram Fyrrverandi markvörður Hattar lagði upp mark í toppslagnum Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Hefur Amorim bætt Man United? Asensio skaut Villa áfram Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Sjá meira