Innlent

Einn fluttur til skoðunar eftir á­rekstur á Arnar­nes­hæð

Sylvía Hall skrifar
Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld. Vísir/Vésteinn

Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir árekstur á Arnarneshæð í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er viðkomandi með minniháttar áverka.

Sjúkrabíll og dælubíll var sendur á vettvang. Myndir frá vettvangi sýna að töluverðar skemmdir urðu á öðrum bílnum við áreksturinn.

Áreksturinn varð á Arnarneshæð.Vísir/Vésteinn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×