Manchester City ekki í vandræðum í Frakklandi 27. október 2020 22:05 Leikmenn Manchester City fagna öðru marki liðsins í kvöld. EPA-EFE/Guillaume Horcajuelo Manchester City átti ekki í neinum vandræðum með Marseille á útivelli er liðin mættust í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld, lokatölur 3-0 City í vil. Í hinum leik riðilsins vann Porto 2-0 sigur á Olympiacos. Fyrsta mark leiksins í Marsaille kom eftir aðeins 18 mínútur og það gerði Ferran Torres eftir sendingu Kevin De Bruyne. Staðan orðin 1-0 gestunum í vil. Var þetta annað mark Torres í jafn mörgum leikjum fyrir City í Meistaradeildinni. 2 - Ferrán Torres is the second Manchester City player to score in his first two Champions League games for the club, after Mario Balotelli in 2011. Impression. pic.twitter.com/9mqKdOT85K— OptaJoe (@OptaJoe) October 27, 2020 Staðan var 1-0 þangað til tæplega 15 mínútur voru til leiksloka þegar Ilkay Gundogan tvöfaldaði forystu gestanna eftir darraðardans í vítateig heimamanna. Raheem Sterling fullkomnaði svo öruggan sigur lærisveina Pep Guardiola með skoti af stuttu færi eftir frábæra sendingu De Bruyne. Lokatölur 3-0 og City með fullt hús stiga á toppi riðilsins. Í hinum leik C-riðils vann Porto þægilegan 2-0 heimasigur á Olympiacos frá Grikklandi. Fabio Vieira skoraði í fyrri hálfleik og Sergio Oliveira í þeim síðari. Markvörðurinn Ögmundur Kristinsson er ekki skráður í Meistaradeildarhóp gríska félagsins og var því ekki í leikmannahópi þeirra í kvöld. Meistaradeild Evrópu Fótbolti