Innlent

Eftir­lits­nefnd um störf lög­reglu til­kynnt um „ó­við­eig­andi“ fána

Kjartan Kjartansson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist ekki styðja hatursorðræðu eða merki sem ýti undir hana með nokkrum hætti í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér vegna fánanna sem sáust á klæðnaði lögreglukonu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist ekki styðja hatursorðræðu eða merki sem ýti undir hana með nokkrum hætti í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér vegna fánanna sem sáust á klæðnaði lögreglukonu. Vísir/Vilhelm

Tilkynning um umdeilda fána á búningi lögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu hefur verið send eftirlitsnefnd um störf lögreglu. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru merkin sögð óviðeigandi með öllu og ekki í samræmi við fræðslu, stefnu eða markmið lögreglunnar.

Þriggja ára gömul mynd af lögreglukonu á höfuðborgarsvæðinu vakti mikla athygli þegar hún birtist með frétt á Mbl.is í dag. Á búningi lögreglukonunnar sáust þrír fánar sem virðast sumir hafa skírskotun til erlendra hvítra þjóðernishyggjuhópa og nýnasista. Lögreglukonan sagði Vísi í dag að hún hafi ekki vitað af mögulega neikvæðri merkingu fánanna og taldi gagnrýni á samfélagsmiðlum ósanngjarna.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, óskaði eftir að allsherjar- og menntamálanefnd ræddi við fulltrúa lögreglunnar um kynþáttahyggju innan lögreglunnar og leiðir til að sporna gegn henni í kjölfar fréttanna í dag.

Í yfirlýsingu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu nú undir kvöld er merkjunum með fánunum lýst sem „óviðeigandi með öllu“. Embættið harmi að hafa valdið fólki særindum og biðjist afsökunar.

„Skilaboðin sem mátti lesa úr merkjunum eru í engu samræmi við fræðslu, stefnu og markmið lögreglunnar,“ segir í yfirlýsingunni.

Lögreglumönnum embættisins hafi verið send skýr fyrirmæli um að fjarlægja öll merki sem séu ekki í samræmi við reglugerð af lögreglubúningum sínum, séu þau til staðar. Lögreglukonan sagði Vísi í dag að lögreglumenn skiptist gjarnan á fánum af þessu tagi og beri þá undir búningum sínum.

Einn fánanna sem sást á lögreglukonunni virtist vera íslensk útgáfa af fána sem bandarískir lögreglumenn hafa notað með slagorði sínu um að „Blá líf skipti máli“. Það slagorð spratt upp sem andsvar gegn hreyfingu blökkumanna sem mótmæla lögregluofbeldi og kerfislægri kynþáttahyggju vestanhafs undir slagorðinu „Svört líf skipta máli“.

Samfélagsmiðlanotendur bentu á í dag að annar fáni sem sást á myndinni, svartur og hvítur kross á grænum grunni, sé þekktur sem Vínlandsfáni. Hvítir öfgahópar og nýnasistar hafa tekið þann fána upp þó að hann hafi upphaflega verið hannaður af þungarokkstónlistarmanni. Bandarísku mannréttindasamtökin Anti-Defamation League skilgreina Vínlandsfánann sem haturstákn með þeim fyrirvara að hann sé þó stundum notaður í öðru samhengi, sérstaklega af aðdáendum þungarokkarans.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×