Birkir verður fyrirliði landsliðsins í fyrsta sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2020 10:54 Birkir Bjarnason spilaði allar 90 mínúturnar á móti bæði Rúmeníu og Danmörku og leikurinn á móti Ungverjum verður hans þriðji á sjö dögum. Vísir/Hulda Margrét
Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, staðfesti það á blaðamannafundi að Birkir Bjarnason verður fyrirliði íslenska landsliðsins í leiknum á móti Belgíu annað kvöld. Aðalfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er farinn aftur til Katar eftir samkomulag milli Hamrén og Al-Arabi og þá hefur Gylfi Þór Sigurðsson einnig snúið aftur til Englands. Kári Árnason er síðan að glíma við meiðsli og er ekki leikfær en Kári hefur verið þriðji í röðinni þegar kemur að því að fá fyrirliðabandið. Birkir Bjarnason mun leika sinn 89. landsleik á Laugardalsvellinum annað kvöld en þetta verður í fyrsta sinn sem hann verður fyrirliði liðsins. Þetta verður líka þriðji leikur Birkis á aðeins sjö dögum því hann spilaði allar 90 mínúturnar á móti bæði Rúmeníu og Danmörku. Birkir var mættur á blaðamannafundinn í dag og þvertók fyrir það að leikmenn íslenska liðsins eigi í vandræðum með að gíra sig upp í leikina í Þjóðadeildinni þar sem við höfum tapað öllum okkar leikjum. En segir synd að geta ekki stillt upp okkar sterkasta liði. Birkir sagðist líka hlakka til leiksins gegn Ungverjalandi 12. nóvember. Hann kveðst vera bjartsýnn og segir möguleikana mjög góða.
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Fleiri fréttir Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Sjá meira