Koma á hæsta viðbúnaðarstigi í París Kjartan Kjartansson skrifar 5. október 2020 13:38 Enn verður hægt að heimsækja veitingahús í París en gestir þurfa að skilja eftir upplýsingar um hvernig er hægt að ná í þá. Vísir/EPA
Öll börum, líkamsræktarstöðvum og sundlaugum verður lokað í París á morgun þegar hæsta viðbúnaðarstig vegna kórónuveirufaraldursins tekur gildi. Smituðum hefur fjölgað töluvert undanfarna daga. Veitingahús verða áfram opin en með auknum smitvörnum. Rúmlega 12.500 manns greindust smitaðir af kórónuveirunni í Frakklandi í gær. Rúmlega 200 hópsýkingar hafa komið upp í höfuðstaðnum París. Franska ríkisstjórnin ákvað að setja París á hæsta viðbúnaðarstig sem þýðir að hlutfall nýsmita er meira en 250 á 100.000 íbúa og 30% rýma á gjörgæsludeildum eru undirlögð fyrir kórónuveirusjúklinga. „Við verðum að hægja á þessu svo að það þyrmi ekki yfir heilbrigðiskerfið okkar,“ sagði Didier Lallement, lögreglustjórinn í París á blaðamannafundi í dag. Takmarkanirnar gilda í tvær vikur, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Ekki þarf að loka veitingastöðum svo lengi sem staðirnir halda utan um upplýsingar um hvernig sé hægt að ná í viðskiptavini og loki klukkan 22:00 á kvöldin. Borgarbúar eru hvattir til að vinna heima eftir fremsta megni og skólastofur háskóla mega aðeins vera hálffullar með nýju reglunum.
Frakkland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Erlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Sjá meira