Fótbolti

Tvö lið sigurstranglegri en Liverpool í Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thiago Alcantara  varð Evrópumeistari með Bayern München er núna kominn til Liverpool.
Thiago Alcantara  varð Evrópumeistari með Bayern München er núna kominn til Liverpool. Getty/Michael Regan

Dregið var í riðla Meistaradeildarinnar í fótbolta í gær og í framhaldi hafa menn farið að spá í spilin fyrir komandi Meistaradeildarvetur.

Tölfræðiþjónustan FiveThirtyEight hefur nú reiknað út sigurlíkur allra liðanna í Meistaradeildinni í fótbolta eftir að í ljós kom í hvaða riðlum liðin 32 verða.

Sigurstranglegustu liðin í Meistaradeildinni 2020-21 eru að mati FiveThirtyEight Evrópumeistarar Bayern München og Manchester City. Bayern München hefur raðað inn titlum á árinu 2020 en Manchester City hefur aftur á móti ollið mörgum vonbrigðum með frammistöðu sinni í Evrópu undanfarin ár.

Það eru sagðar vera 21 prósent líkur á því að Bayern verji titilinn og 16 prósent líkur á því að Manchester City vinni Meistaradeildina i fyrsta sinn.

Bayern München vann Meistaradeildina í ágúst eftir 1-0 sigur á Paris Saint Germain í úrslitaleiknum í Portúgal. Manchester City tapaði óvænt á móti Lyon í átta liða úrslitunum.

Liverpool er í þriðja sætinu með tólf prósent sigurlíkur og er þar á undan Barcelona (11 prósent), Paris Saint-Germain (8 prósent) og Real Madrid (7 prósent).

Manchester City er aftur á móti með mestu líkurnar á að komast upp úr riðlinum eða 95 prósent. Barcelona er þar í öðru sæti með 94 prósent líkur og það eru 92 prósent líkur á því að Liverpool komist upp úr riðlinum sínum.

Manchester City er í riðli með Porto frá Portúgal, Olympiacos frá Grikklandi og Marseille frá Frakklandi.

Barcelona er í riðli með Juventus frá Ítalíu, Dynamo Kiev frá Úkraínu og Ferencváros frá Ungverjalandi.

Liverpool er í riðli með Ajax frá Hollandi, Atalanta frá Ítalíu og Midtjylland frá Danmörku.

Evrópumeitarar Bayern München eru bara í fjórða sætinu yfir þau lið sem eru líklegust til að fara áfram í útsláttarkeppnina en Bayern er í riðli með Atlético Madrid frá Spáni, Red Bull Salzburg frá Austurríki og Lokomotiv Moskva frá Rússlandi.

  • Hæstu sigurlíkur liða í Meistaradeildinni 2020-21:
  • 1. Bayern München 21%
  • 2. Manchester City 16%
  • 3. Liverpool 12%
  • 4. Barcelona 11%
  • 5. Paris Saint-Germain 8%
  • 6. Real Madrid 7%
  • 7. Atletico Madrid 4%
  • 8. Borussia Dortmund 3%
  • 8. Chelsea 3%
  • 10. Juventus 2%
  • 10. RB Leipzig 2%
  • 10. Manchester United 2%
  • 10. Internazionale Milan 2%
  • Mestu líkur liða að komast upp úr riðlinum í Meistaradeildinni 2020-21:
  • 1. Manchester City 95%
  • 2. Barcelona 94%
  • 3. Liverpool 92%
  • 4. Bayern München 89%
  • 5. Paris Saint-Germain 82%
  • 6. Chelsea 81%
  • 7. Real Madrid 78%
  • 8. Borussia Dortmund 77%
  • 8. Juventus 77%
  • 10. Sevilla 71%



Fleiri fréttir

Sjá meira


×