Erlent

Starfandi forseti dregur framboð sitt til baka

Kjartan Kjartansson skrifar
Añez kynnti ákvörðun sína um að draga framboðið til baka í myndbandi á samfélagsmiðlum í gær.
Añez kynnti ákvörðun sína um að draga framboðið til baka í myndbandi á samfélagsmiðlum í gær. AP/Juan Karita

Jeanine Añez, starfandi forstjóri Bólivíu, dró framboð sitt til forseta til baka í gær. Skoðanakannanir sýndu að hún væri í fjórða sæti frambjóðenda og sagðist Añez vilja hjálpa til við að sameina hægri væng stjórnmálanna og koma í veg fyrir að vinstrimaðurinn Luis Arce verði forseti.

Kosið verður til forseta í Bólivíu 18. október. Añez hefur gegnt embætti forseta frá því að Evó Morales hrökklaðist frá völdum í skugga mikilla mótmæla eftir umdeildar kosningar í nóvember í fyrra. Hún lofaði í fyrstu að boða fljótt til kosninga en það hefur dregist þar til nú.

„Ég er að þessu vegna þess að það er hætta á að atkvæðin dreifist á nokkra frambjóðendur. Þetta er ekki fórn, þetta er heiður,“ sagði Añez í ávarpi sem hún birti á samfélagsmiðlum.

Arce, sem var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Morales, mælist nú með forskot í skoðanakönnunum með um 40% fylgi. Gengi það eftir yrði hann kjörinn forseti. Með brotthvarfi Añez eru nú aðeins tveir raunhæfir frambjóðendur úr röðum hægrimanna sem gætu nú brúað bilið í Arce.

New York Times segir að Añez hafi bakað sér óvinsældir, meðal annars með harðlínustefnu gegn Sósíalistahreyfingar Morales sem var fyrsti forseti Bólivíu af frumbyggjaættum. Stuðningur frumbyggja við flokkinn hefur farið vaxandi í tíð starfandi forsetans. Þá hjálpaði það Añez ekki að hún sveik loforð um að taka aðeins við embættinu í skamman tíma áður en hægt væri að kjósa nýjan forseta.

Añez lýsti sjálfa sig forseta eftir brotthvarf Morales í nóvember í fyrra. Hélt hún á lofti eintaki af Biblíunni. Sem forseti hefur hún komið kaþólskum táknum inn í ríkisathafnir.AP/Juan Karita

Viðbrögð ríkisstjórnar hennar við kórónuveirufaraldrinum og efnahagskreppa sem honum fylgdi hafi svo sökkt Añez endanlega. Hún mældist aðeins með um 10% stuðning í skoðanakönnun sem var birt daginn áður en Añez dró sig í hlé.

Morales sjálfur er nú í útlegð en bólivísk yfirvöld ákærðu hann fyrir hryðjuverk. Mannréttindasamtök halda því fram á ákærunar byggi ekki á sönnunargögnum og eigi sér pólitískar rætur. Bólivíska dómsmálaráðuneytið ákærði Morales einnig fyrir nauðgun og mansal í síðasta mánuði. Hann er sakaður um að hafa átt í sambandi við táningsstúlku sem hafi ferðast með honum í opinberar heimsóknir.


Tengdar fréttir

Fresta forsetakosningum og skipa þjóðinni að fara í sóttkví

Ríkisstjórn Suður-Ameríkuríkisins Bólivíu hefur ákveðið að vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sem getur valdið COVID-19 sjúkdómnum, sé ráð að fresta fyrirhuguðum forsetakosningum sem áttu að fara fram 3. maí næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×