Erlent

Mikill munur á borgarafundi Biden og Trump

Samúel Karl Ólason skrifar
Joe Biden á sviði í gær.
Joe Biden á sviði í gær. AP/Carolyn Kaster

Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, gagnrýndi Donald Trump, forseta, harðlega á borgarafundi á vegum CNN í gær. Hann sagði meðal annars að viðbrögð Trump við faraldri nýju kórónuveirunnar væru óábyrg og það að Trump hafi vísvitandi gert lítið úr alvarleika faraldursins vera „glæpsamlegt“.

„Þú verður að segja bandaríska fólkinu sannleikann. Það hefur aldrei gerst að þau hafi ekki tekist á við áskorunum. Forsetinn ætti að stíga til hliðar,“ sagði Biden við fögnuð þeirra sem fundinn sátu og einkenndi það andrúmsloft fundinn.

Borgarafundurinn, sem var haldinn nærri heimabæ Biden, var óhefðbundinn þar sem margir gestir sátu í bílum sínum fyrir framan sviðið. Hann var einnig tiltölulega rólegur og fékk Biden mun betri móttökur en Trump fékk á sínum borgarafundi fyrr í vikunni. Politico segir Biden hafi verið tekinn vettlingatökum á fundinum.

Trump mætti kjósendum sem sögðust óákveðnir fyrr í vikunni. Á kosningafundi í gær kvartaði hann þó yfir því að gestir þeirra fundar hefðu verið mun strangari við hann en gestur fundar Biden. 

Biden sagðist líta á kosningabaráttuna sem baráttu á milli Scranton, heimabæjar hans, og Park Avenue í New York, þar sem Trump býr í New York.

„Það eina sem Trump sér frá Park Avenue er Wall Street. Hann heldur að allt snúist um hlutabréfamarkaðinn,“ sagði Biden. Hann skaut á forsetann fyrir að hugsa eingöngu um hina auðugu íbúa Bandaríkjanna og gagnrýndi meðhöndlun hans á hagkerfi Bandaríkjanna.

Kannanir hafa þó sýnt að Trump stendur betur að vígi en Biden í huga kjósenda, þegar kemur að efnahagi landsins.

Biden virtist mikið í mun að lýsa ekki yfir stuðningi við „Græna samkomulagið“ svokallaða sem er tillaga frá framsæknum þingmönnum Demókrataflokksins og snýr að því að draga verulega úr mengun í Bandaríkjunum og hætta losun gróðurhúsalofttegunda árið fyrir árið 2030.

„Ég er með mitt eigið samkomulag,“ sagði Biden. Hans tillaga er ekki jafn framsækin en snýst þó um að hætta losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2050. Þegar einn borgari lagði til að það væru sambærilegar tillögur sagði hann svo ekki vera. Seinna meir sagði Biden þó að honum þætti Græna samkomulagið ekki ganga of langt.

Biden hefur verið mikið í mun um að koma fram sem miðjumaður og að sameina Bandaríkjamenn á nýjan leik. Hann hét því til að mynda að verða ekki forseti Demókrata heldur forseti Bandaríkjamanna.

Biden varði einnig tíma í að gagnrýna William Barr, dómsmálaráðherra Trump, harðlega. Sérstaklega fyrir ummæli hans um að takmarkanir vegna faraldursins væru versta brot sem framið hefði verið á réttindum Bandaríkjamanna, að þrælahaldi undantöldu.

Washington Post segir að borgarafundurinn hafi virst vera æfing Biden fyrir fyrstu kappræðurnar, sem munu fara fram þann 29. september.


Tengdar fréttir

Sagði að Covid myndi hverfa vegna „hjarðeðlis“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, svaraði spurningum á sjónvörpuðum borgarafundi í gærkvöldi þar sem hann sagðist meðal annars ekki hafa gert lítið úr heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar.

Biden mælist enn með töluvert forskot

Útlit er fyrir að landsfundir Demókrata og Repúblikana hafi haft lítil áhrif á viðhorf kjósenda fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Joe Biden, frambjóðandi Demókrataflokksins, er enn með talsvert forskot gegn Donald Trump, forseta.

Vara við „Rauðri hillingu“ á kjördag

Sérfræðingar eru byrjaðir að vara við því að niðurstöður forsetakosninganna í Bandaríkjunum í nóvember, gætu tekið miklum breytingum eftir kosninganóttina sjálfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×