Innlent

Einn greindist í gær

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Einstaklingurinn sem greindist var í sóttkví við greiningu.
Einstaklingurinn sem greindist var í sóttkví við greiningu. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Einn einstaklingur greindist með kórónuveiruna í gær og var í sóttkví við greiningu. Þá greindist einn á landamærunum, en viðkomandi bíður mótefnamælingar.

Þetta kemur fram í nýjustu tölum á covid.is. Þar kemur einnig fram að einn er á sjúkrahúsi með Covid-19.

Alls eru staðfest smit frá upphafi faraldursins 2.162 og af þeim sem hafa greinst með Covid-19 á Íslandi eru tíu látin.

Í einangrun eru 67 manns, og fækkar um fimm síðan í gær. Þá eru 376 í sóttkví, en í gær voru 363.

Alls var tekið 461 sýni innanlands í gær og 725 á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×