Auknar líkur á að Man Utd fái Raúl Jimenez Ísak Hallmundarson skrifar 6. september 2020 11:00 Raúl Jimenez hefur lengi verið orðaður við Manchester United. getty/Robbie Jay Barratt
Manchester United hefur í allt sumar verið orðað við mexíkóska framherjann Raúl Jimenez, sem hefur farið á kostum með Wolves undanfarin tvö tímabil. Nú fá fréttir um að Jimenez sé á leið til Man Utd byr undir báða vængi, en í gær keyptu Úlfarnir portúgalska framherjann Fabio Silva fyrir metfé. Silva kemur til Wolves frá Porto á 35 milljónir punda, en Jimenez var keyptur á 30 milljónir punda frá Benfica á síðasta ári. Talið er að Wolves vilji fá 60 milljónir punda frá Man Utd fyrir Mexíkóann og eru kenningar uppi um að með kaupunum á Silva séu Úlfarnir að búa sig undir að missa Jimenez til United. Raúl Jimenez er 29 ára og hefur skorað 44 mörk í 99 leikjum fyrir Wolves og væri góð viðbót við framlínu Ole Gunnar Solskjær hjá Rauðu djöflunum. Man Utd gerði sín fyrstu kaup í sumarglugganum á dögunum þegar liðið fékk til sín Donny van de Beek frá Ajax en ljóst er að liðið þarf að styrkja sig enn frekar til að eiga möguleika á að berjast um Englandsmeistaratitilinn.
Enski boltinn Mest lesið Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Breyttist í Messi þegar það vantaði Messi Fótbolti „Urðum okkur sjálfum til skammar“ Körfubolti Nottingham Forest vann aftur eftir vítakeppni Enski boltinn Juventus nálgast titilbaráttuna óðfluga Fótbolti Man. United má ekki nota unga framherjann sinn í Evrópudeildinni Enski boltinn Aflýstu leik í spænsku deildinni vegna flóðahættu Fótbolti Martin og félagar gulir og glaðir þriðja leikinn í röð Körfubolti Vinícius Júnior vill nýjan Real Madrid samning strax Fótbolti Jón Otti körfuboltadómari fallinn frá Körfubolti Fleiri fréttir Nottingham Forest vann aftur eftir vítakeppni Man. United má ekki nota unga framherjann sinn í Evrópudeildinni Amorim: „Ég er ekki barnalegur“ Kvartar undan boltanum eftir tuttugu skot framhjá Draumaprinsinn Benoný: „Kannski sá besti hérna í að klára færin“ Stefán Teitur og félagar mæta Aston Villa Hamrarnir hentu frá sér tveggja marka forystu gegn Arsenal Chelsea tapaði óvænt stigum á meðan Hlín tapaði fyrir Rauðu djöflunum Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Welbeck skaut Brighton áfram Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Mateta líður vel þrátt fyrir tæklingu í andlitið Man City sterkari í síðari hálfleik og komið áfram Fyrrverandi markvörður Hattar lagði upp mark í toppslagnum Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Hefur Amorim bætt Man United? Asensio skaut Villa áfram Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Sjá meira