Innlent

Sex greindust með smit innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
6330628D56E4D3A9B69BADA921088349AFEF1F5391DB3F7BFCA8EDAE0A0C9122_713x0
Vísir/Vilhelm

Alls greindust sex með virkt kórónuveirusmit innanlands síðasta sólarhringinn. Þrír greindust á landamærunum og niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tveimur tilvikum, en einn var með mótefni.

Af þeim sex sem greindust innanlands voru þrír í sóttkví. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is.

Eins og stendur eru 96 í einangrun, jafnmargir og í gær. Þá eru 579 í sóttkví og fer þeim fækkandi, en 612 voru í sóttkví í gær. 24.372 hafa lokið sóttkví frá því að faraldurinn hófst hér á landi.

Samkvæmt tölum á covid.is liggur enginn á sjúkrahúsi af völdum veirunnar. Frá upphafi faraldursins hafa tíu látist af völdum Covid-19 hér á landi.

549 einkennasýni voru tekin í gær á sýkla- og veirufræðideildinni og 906 sýni voru tekin á landamærunum. Þá voru átta sýni tekin í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er 16,6, en var 17,7 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita enn 7,6, líkt og í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×