Viðskipti innlent

Vilja að þingmenn upplýsi um vildarpunktastöðu sína

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þétt setinn salur Alþingis. Þessa dagana er betur dreift úr þingmönnum til að halda uppi fjarlægðartakmörkunum.
Þétt setinn salur Alþingis. Þessa dagana er betur dreift úr þingmönnum til að halda uppi fjarlægðartakmörkunum. Vísir/Vilhelm

Samtök skattgreiðenda óska eftir því að hver einasti þingmaður gefi upp möguleg hagsmunatengsl sín við Icelandair, áður en gengið verður til atkvæða um samþykkja eigi að veita Icelandair Group ríkisábyrgð á 16,5 milljarða lánalínu til félagsins, þar á meðal vildarpunktastöðu þeirra hjá flugfélaginu.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í umsögn félagsins við frumvarpi fjármálaráðherra um fjáraukalög 2020, sem nær til hinnar fyrirhuguðu ríkisábyrgð. Samtökin berjast að sögn formannsins fyrir skattalækkunum og betri meðferðar á skattfé. Samtökin voru ekki á meðal þeirra félaga eða stofnana sem fengu umsagnarbeiðni vegna frumvarpsins, en hver sem getur sent inn umsagnir um þingmál.

Lítil flugumferð hefur verið á Keflavíkurflugvelli undanfarið. Fram kom á upplýsingafundi almannavarna í gær að um 500-1000 manns færu um flugvöllinn á degi hverjum þessa dagana.Vísir/Vilhelm

Í umsögninni kemur fram að samtökin leggist alfarið gegn því að íslenska ríkið ábyrgist umrædda lánalínu, engan veginn sé búið að skoða með hvaða öðrum, og mögulega ódýrari hætti, sé hægt tryggja flugsamgöngur til og frá Íslandi, muni hinn frjálsi markaður ekki sjá um slíkt, líkt og það er orðað í umsögninni.

Þar kemur einnig fram að ekki sé verið að gera lítið úr mikilvægi Icelandair fyrir íslenska ferðaþjónustu, en að ekki sé þörf á því að flýta för hvað varðar ríkisábyrgð.

„Þá gera Samtök skattgreiðenda þá kröfu til þingmanna að þeir geri hreint fyrir sínum dyrum hvað varðar persónulega hagsmuni af því að verja Icelandair falli,“ segir orðrétt í umsöginni.

Er þess óskað að þingmenn upplýsti hvort að þeir, makar þeirra eða aðrir nákomnir eigi einhverja hagsmuni að gæta að verja Icelandair falli vegna fríðina sem þeir kunni að njóta hjá félaginu.

Því óska samtökin eftir því að hver þingmaður upplýsi um hver sé staða þeirra í vildar- og ferðapunktum, hvort viðkomandi sé silfur- eða gullkortshafi í Vildarklúbbi Icelandair og hvort viðkomandi sé handhafi hlutafjár í Icelandair.

Vilja samtökin að þessar upplýsingar liggi fyrir áður en atkvæði verða greidd um frumvarpið, en Alþingi þarf að samþykkja að veita Icelandair Group ríkisábyrgð. Þannig megi koma í veg fyrir „eftiráspeki og gagnrýni“ í þeim efnum.


Tengdar fréttir

Play leggst alfarið gegn ríkisaðstoð við Icelandair

Forstjóri flugfélagsins Play segir það skekkja samkeppnisstöðuna á flugmarkaði ef ríkið veiti Icelandair ríkisábyrgð á lánum upp á 15 milljarða. Play sé tilbúið að hlaupa hratt í skarðið fari illa fyrir Icelandair.

Ekki óskað eftir um­sögnum keppi­nauta Icelandair

Fjárlaganefnd Alþingis hefur óskað eftir umsögn alls átján aðila á frumvarpi Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um ríkisábyrgð á fimmtán milljarða láni til Icelandair Group. Hvorki var óskað eftir umsögn frá Samkeppniseftirlitinu eða samkeppnisaðilum Icelandair.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×