Innlent

Fimm greindust innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Sýnatökur hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.
Sýnatökur hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm

Alls greindust fimm með virkt kórónuveirusmit síðasta sólarhringinn hér á landi. Þá greindust fjórir með kórónuveirusmit á landamærunum, en niðurstöðu mótefnamælingar er beðið í tilviki tveggja. Hinir tveir voru með mótefni. 

Allir þeir fimm sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví.

Eins og stendur eru 99 í einangrun og fækkar um einn milli daga. Þá eru 848 í sóttkví og fer þeim fækkandi, en 900 voru í sóttkví í gær. 24.057 hafa lokið sóttkví frá því að faraldurinn hófst hér á landi.

Samkvæmt tölum á covid.is liggur enginn á sjúkrahúsi af völdum veirunnar. Frá upphafi faraldursins hafa tíu látist af völdum Covid-19 hér á landi.

559 einkennasýni voru tekin í gær á sýkla- og veirufræðideildinni og 1.305 sýni voru tekin á landamærunum. Þá voru 116 sýni tekin í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er enn 16,9. Þá er nýgengi landamærasmita nú 8,2, en var 8,5 í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×