Innlent

Enginn greindist innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
F436C2DAA965F6DB49E7FB3F734D4D0E9A5F524826188C8859A09455888BBF7B_713x0
Vísir/vilhelm

Enginn greindist með virkt kórónuveirusmit síðasta sólarhringinn hér á landi. Þó greindust tveir með kórónuveirusmit á landamærunum, en bíða báðir mótefnamælingar.

Þetta er í fyrsta sinn frá 10. ágúst þar sem enginn greinist innanlands.

Eins og stendur eru hundrað í einangrun og fækkar um fimm milli daga. Þá eru 900 í sóttkví og fer þeim fækkandi, en 986 voru í sóttkví í gær. 24.037 hafa lokið sóttkví frá því að faraldurinn hófst hér á landi.

Samkvæmt tölum á covid.is liggur enginn á sjúkrahúsi af völdum veirunnar. Frá upphafi faraldursins hafa tíu látist af völdum Covid-19 hér á landi.

217 einkennasýni voru tekin í gær á sýkla- og veirufræðideildinni og 1.477 sýni voru tekin á landamærunum.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur fer úr 16,9 niður í 16,4. Þá er nýgengi landamærasmita nú 8,5, en var 9,8 í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×