Fótbolti

Stórstjarna Bæjara var út í kuldanum hjá Tony Pulis eins og margur Íslendingurinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Serge Gnabry hefur skorað 5 mörk fyrir Bayern í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar og níu mörk á tímabilinu í bestu deild í heimi.
Serge Gnabry hefur skorað 5 mörk fyrir Bayern í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar og níu mörk á tímabilinu í bestu deild í heimi. Getty/Michael Regan

Serge Gnabry hefur slegið í gegn hjá Bayern München í Meistaradeildinni og á mikinn þátt í því að þýska stórliðið er komið alla leið í úrslitaleikinn á sunnudaginn. Það er einn maður sem er ávallt minntur á hetjudáðir stráksins og það er maður sem íslenskur fótbolti þekkir líka vel.

Serge Gnabry hefur skorað 9 mörk í 9 leikjum með Bayern München í Meistaradeildinni á þessu tímabili þar af 2 mörk í fyrri leiknum á móti Chelsea í sextán liða úrslitunum og þrjú í leikjunum í átta liða og undanúrslitum keppninnar.

Þá má ekki gleyma fernunni hans í 7-2 sigri á Tottenham í London í október síðastliðnum.

Það fer ekkert á milli mála að Serge Gnabry er orðinn stórstjarna í knattspyrnuheiminum og þessi 25 ára strákur er líklegur til afreka á næstu árum.

Það er samt einn maður sem sá ekki slíka frammistöðu í spilunum hjá kappanum og sá maður heitir Tony Pulis.

Tony Pulis er þekktastur fyrir það á Íslandi að hafa stýrt liði Stoke City þegar það var í eigu Íslendinga og fyrir það að fara illa með íslenska knattspyrnumenn sem fengu fá tækifæri hjá honum og voru oftast út í kuldanum.

Umræddur Serge Gnabry á það sameiginlegt með íslensku knattspyrnumönnunum hjá Stoke að hafa ekki heillað knattspyrnustjórann Tony Pulis.

Serge Gnabry var í láni hjá West Bromwich Albion fyrstu fimm mánuðina á 2015-16 tímabilinu en Gnabry var þá leikmaður Arsenal. Gnabry átti að vera í láni alla leiktíðina en var kallaður til baka í janúar. Ástæðan var að Tony Pulis vildi ekki nota hann.

Tony Pulis leyfði Serge Gnabry aðeins að spila í samtals tólf mínútur alla þessa fimm mánuði og það er frekar skrautlegt að skoða listann yfir þá vængmenn sem hann vildi nota frekar.

Planet Football skoðaði hvaða leikmenn þetta voru. James Morrison er nú hættur, Chris Brunt, Callum McManaman og Stephane Sessegnon eru allir með lausan samning, James McClean er hjá Stoke og Alex Pritchard er hjá Huddersfield. Serge Gnabry er aftur á móti að gera frábæra hluti á stærsta sviðinu sem er Meistaradeildin.

Arsenal hafði heldur ekki alltof mikla trú á Serge Gnabry því félagið seldi hann til Werder Bremen fyrir aðeins fimm milljónir punda. Arsene Wenger hafði reyndar trú á honum en leikmaðurinn vildi prófa eitthvað nýtt eftir að hafa fengið fá tækifæri hjá franska stjóranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×