Luka­ku og Martinez sáu um Shak­htar er Inter tryggði sér sæti í úr­slitum Evrópu­deildarinnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Lukaku skoraði tvívegis í kvöld.
Lukaku skoraði tvívegis í kvöld. vísir/getty

Inter valtaði hreinlega yfir Shakhtar Donetsk í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Lokatölur leiksins 5-0 Inter Milan í vil.

Andra ... - markvörður Shakhtar - átti slæma sendingu fram völlinn á 18. mínútu. Endaði það með því að Nicolo Barella gaf fyrir markið og Lautaro Martinez skoraði af öryggi. Staðan orðin 1-0 Inter Milan í vil en fleiri urðu mörkin þó ekki í fyrri hálfleik. 

Leikmenn Shakhtar voru alveg sprungnir í síðari hálfleik á meðan Inter virtist eiga nóg eftir á tanknum. Það tók Inter hins vegar tæpar tuttugu mínútur að skora annað mark sitt í leiknum en eftir það brustu flóðgáttirnar einfaldlega.

Danilo D'Ambrosio tvöfaldaði forystu ítalska félagsins á 64. mínútu og tíu mínútum síðar skoraði Martinez sitt annað mark í leiknum. Romalu Lukaku hefur verið heitur fyrir framan mark andstæðinganna í vetur og hann bætti við mörkum á 78. og 84. mínútu. 

Var þetta 10. Evrópudeildarleikurinn í röð sem Lukaku skorar í.

Ljóst að þeir Martinez og Lukaku ná vel saman í fremstu víglínu en þeir skoruðu báðir tvívegis ásamt því að leggja upp sitt hvort markið.

Lokatölur 5-0 og ljóst að lærisveinar Antonio Conte mæta Sevilla í úrslitum Evrópudeildarinnar á föstudaginn kemur - að sjálfsögðu í beinni útsendingu Stöð 2 Sport.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira