Enski boltinn

Liverpool á þrjú af fimm hagstæðustu kaupum ensku deildarinnar frá 2014

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andrew Robertson hefur verið magnaður í vinstri bakvarðarstöðunni hjá Liverpool. Hér fagnar hann marki með Virgil van Dijk.
Andrew Robertson hefur verið magnaður í vinstri bakvarðarstöðunni hjá Liverpool. Hér fagnar hann marki með Virgil van Dijk. Getty/Clive Brunskill

Það getur skipt gríðarlegu máli fyrir fótboltafélög að finna góða leikmenn fyrir lítinn pening. Verð leikmanna hefur hins vegar farið upp úr öllu valdi síðustu ár og því enn erfiðara fyrir lið að gera góð kaup.

ESPN fór yfir öll kaup ensku úrvalsdeildarfélaganna frá árinu 2014 með það markmið að finna út hver hafi verið fimm hagstæðustu og fimm óhagstæðustu kaupin á þessum sex árum.

Uppkoma Liverpool á síðustu árum á því mikið að þakka að félagið hefur keypt leikmenn fyrir ekki alltof mikinn pening og þessir leikmenn hafa síðan blómstrað undir stjórn Jürgen Klopp.

Það kemur því líklega ekki á óvart að Liverpool er áberandi á topplistanum yfir hagstæðustu kaupin í ensku úrvalsdeildinni undanfarin sex ár.



Liverpool á þannig þrjú af fimm hagstæðustu kaupum ensku deildarinnar frá 2014 og Virgil van Dijk kemst samt ekki þangað inn.

Virgil van Dijk var mjög dýr en það efast þó enginn um hversu góð kaup það voru. Verðmiðinn var samt það hár að þau geta ekki talist sérstaklega hagstæð út frá stöðlum ESPN.

Hagstæðustu kaupin eru aftur á móti kaup Liverpool á bakverðinum Andrew Robertson frá Hull City árið 2017. Liverpool borgaði bara átta milljónir pund fyrir hann en hann er nú metinn á 82 milljónir punda.

Í öðru sæti eru kaup Tottenham á Dele Alli frá MK Dons árið 2015 en hann kostaði Spurs bara fimm milljónir. Alli hefur hækkað um 48 milljónir punda í virði síðan þá.



Kaup Liverpool á þeim Georginio Wijnaldum (frá Newcastle) og Mohamed Salah (frá Roma) komast einnig inn á listann og fimmtu bestu kaupin eru síðan kaup Leicester City á Ricardo Pereira frá Porto.

Verstu kaupin þykja vera kaup Chelsea á Michy Batshuayi frá Marseille árið 2016. Chelsea borgaði 33,2 milljónir punda fyrir hann en hann hefur ekki gert mikið fyrir félagið síðan og er í dag metinn á „aðeins“ 8,4 milljónir punda.

Í öðru sæti eru síðan kaup Manchester United á Eric Bailly frá Villarreal fyrir 30 milljónir punda árið 2016.

Í næstu sætum eru síðan kaup Burnley á Ben Gibson (frá Middlesbrough), kaup Everton á Oumar Niasse (frá Lokamotiv Moskvu) og kaup Leicester City á Kelechi Iheanacho frá Manchester City

Það má lesa meira um þetta með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×