Dæmt til að greiða reknum starfsmanni vegna Hitler-míms Atli Ísleifsson skrifar 11. ágúst 2020 08:23 Bruno Gantz í hlutverki Adolf Hitler í myndinni Der Untergang frá árinu 2004.
Olíufélagið BP hefur verið dæmt til að greiða starfsmanni á olíuhreinsistöð BP í Ástralíu um 200 þúsund dali, um 20 milljónir króna, fyrir ólögmæta uppsögn. Maðurinn var rekinn fyrir að skapa og birta svokallað mím, sem byggði á vel þekktu atriði úr þýsku myndinni Der Untergang (e. Downfall), í lokuðum Facebook-hóp þar sem hann gagnrýndi starfshætti fyrirtækisins. Scott Tracey notaðist við mímið (e. meme), þar sem sjá má leikarann Bruno Gantz í hlutverki Adolf Hitler, til að hæðast að fyrirtækinu og gang kjaraviðræðna þess við starfsmenn. Tracey var rekinn frá BP, en eftir tveggja ára málaferli hafa honum verið dæmdar bætur fyrir ólöglega uppsögn. Hann hefur sömuleiðis snúið aftur til vinnu hjá félaginu. Í míminu má sjá Hitler reiðast í byrgi sínu þar sem hann ræðir við herforingja sína. Hafa fjölmargir breytt textanum sem fylgir til að búa til brandara. Tracey fór fyrst með málið fyrir gerðardóm þar sem hann beið lægri hlut. Hann fór síðar með málið fyrir dómstóla og kvað alríkisdómstóll upp þann dóm að það væri ekki hægt að halda því með réttu fram að verið væri að líkja stjórnendur BP við nasista. Sömuleiðis hafi enginn verið nafngreindur í míminu.
Ástralía Mest lesið Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Innlent Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni Innlent Skilur ekki hægagang dómsmálaráðuneytisins Innlent Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Innlent Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina Innlent Kirkjan skaðabótaskyld gagnvart Kristni Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Erlent Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Erlent Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Fleiri fréttir Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sjá meira