Guðmundur og Haraldur náðu hvorugir í gegnum niðurskurðinn Ísak Hallmundarson skrifar 12. júlí 2020 13:20 Haraldur Franklín Magnús. vísir/getty
Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús náðu hvorugir í gegnum niðurskurðinn á Opna Austurríska mótinu í golfi. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni og Áskorendamótaröð Evrópu. Lokahringurinn fer fram í dag en niðurskurður var eftir tvo hringi. Til að halda áfram þátttöku hefðu þeir Guðmundur og Haraldur þurft að vera á samtals einu höggi undir pari. Guðmundur lék vel fyrsta daginn og var á 70 höggum, tveimur höggum undir pari, en náði ekki að fylgja því eftir annan daginn og lék á 77 höggum. Hann var samtals á þremur höggum yfir pari. Haraldur byrjaði mótið hræðilega og var á 81 höggi fyrsta daginn, tíu höggum yfir pari, en náði sér á strik seinni daginn og lék þá á 71 höggi, einu höggi undir pari. Hann var því samtals níu höggum yfir pari á mótinu. Hér má sjá stöðuna í mótinu og skorkort þeirra Guðmundar og Haralds.
Golf Mest lesið Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Fótbolti Dukic harðorður gagnvart CrossFit: Fyrirtæki sem virðir ekki mannslíf Sport Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“ Körfubolti Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Fótbolti „Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“ Körfubolti Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Fótbolti Missti stjórn á sér og gaf stig: „Veit að þetta er ekki mjög sænsk hegðun“ Sport Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Enski boltinn Bein útsending: Sviss - Ísland | Styttist í EM Handbolti Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Enski boltinn Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira