Brentford lætur toppliðin ekki í friði Ísak Hallmundarson skrifar 11. júlí 2020 14:00 Leikmenn Brentford sáttir eftir leik. getty/Ross Kinnaird
Brentford nálgast nú óðum efstu lið í ensku Championship-deildinni, næstefstu deild Englands, en liðið vann sinn sjötta leik í röð í dag þegar liðið mætti Derby County. Derby þurfti nauðsynlega á sigri að halda í baráttunni um umspilssæti en Brentford á enn möguleika á að fara beint upp í ensku úrvalsdeildina. Fyrsta mark leiksins skoraði Ollie Watkins fyrir Brentford strax á þriðju mínútu leiksins. Derby svaraði á 29. mínútu þegar Wayne Rooney lagði boltann á Jason Knight sem skoraði. Staðan 1-1 í hálfleik. Á 49. mínútu kom Said Benrahma Brentford yfir á nýjan leik. Hann var síðan aftur á ferðinni á 64. mínútu og innsiglaði 3-1 sigur Brentford sem er nú með 78 stig í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir West Brom í öðru sætinu og þremur á eftir Leeds á toppnum. Bæði þessi lið eiga þó leik til góða á Brentford. Derby er aftur á móti í 9. sæti, þremur stigum frá umspilssæti. Einn annar leikur fór fram á sama tíma, þar sem Charlton fékk Reading í heimsókn. Lauk leiknum með 0-1 sigri Reading, sem siglir lygnan sjó í 13. sæti. Charlton er í bullandi fallhættu í 20. sæti, stigi ofar en fallsæti.
Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Sjá meira