Skoðun

Risastórt skref fyrir foreldra í námi

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Sigrún Ásta Brynjarsdóttir skrifa

Á Íslandi er algengt að háskólanemar eignist börn á meðan að námi þeirra stendur. Margskonar ástæður eru fyrir því að háskólanemar ákveða að eignast börn á þeim tíma. Til dæmis eru margir á barneignaaldri á meðan að námi stendur, sum telja að aðstæður sínar henti best til barneigna á þeim tíma, aðrir eiga börn þegar þau ákveða að fara í nám og stundum eru barneignir óskipulögð en óvænt ánægja sem kom mögulega í kjölfar tilboðshelgar hjá unaðstækjaverslun.

Börnum fylgir mikill kostnaður og því hafa barneignir stundum orðið til þess að fjárhagsáhyggjur háskólanema aukast mikið. Fjárhagsáhyggjur geta dregið úr þrótti og vilja nemenda til að halda áfram með námið sem getur valdið því að einstaklingurinn hættir á endanum í námi. Síðustu áratugi hafa nemendur átt þess kost að taka viðbótarlán vegna barna hjá LÍN til þess að auðvelda sér og fjölskyldu sinni lífið. Hinsvegar veldur það því að háskólanemar með fjölskyldu hafa setið uppi með hærri lán til lengri tíma en samnemendur þeirra sem voru barnlausir á meðan á námi stóð.

En nú hefur þessu verið breytt! Þann 1. júlí 2020 tóku gildi ný lög: Lög um Menntasjóð námsmanna. Í þeim var þessu viðbótarláni breytt í beinan styrk vegna barna. Það þýðir að háskólanemar sem taka lán hjá sjóðnum geta sótt um viðbótarlán vegna barna en munu ekki þurfa að borga það til baka. Með þessu er jafnrétti til náms aukið gríðarlega og líf foreldra í námi gert auðveldara.

Börn eiga skilið stuðning og athygli foreldra sinna strax frá fæðingu. Það að eiga börn er líka stór hluti af lífi margra og gæti því álag í námi og fjárhagsáhyggjur komið niður á tengslum foreldra og barna.

Eitt af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna er  „menntun fyrir alla”, eða jafnrétti til náms. Allir eiga að hafa kost á að stunda það nám sem þeir kjósa, óháð stöðu sinni. Það fyrirkomulag og þær breytingar sem lögin um Menntasjóð námsmanna hefur í för með sér auka stuðning við námsmenn með fjölskyldur og draga úr áhyggjum þeirra. Slíkt fyrirkomulag gæti jafnvel dregið úr aðsókn í nám. Við viljum að allir hafi kost á því að mennta sig - fyrir sig og fyrir samfélagið í heild sinni.

Takk Lilja Alfreðsdóttir fyrir að hafa barist fyrir foreldrum í námi og komið þessu í gegn. Þetta er mikilvægt skref fyrir háskólanema, sem og börnin þeirra.

Greinarhöfundar eru mæður í háskólanámi og í stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF)




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×