Tólf urðu fyrir skoti í Minneapolis Andri Eysteinsson skrifar 21. júní 2020 18:42 Frá vettvangi árásarinnar í Minneapolis. AP/Doug Glass
Ellefu eru særðir og einn lést eftir skotárás sem var framin í bandarísku borginni Minneapolis skömmu eftir miðnætti að staðartíma. Skothríðin hófst í Uptown-hverfinu þar sem mikið er um næturlíf, bari, veitingastaði og verslanir. Lögreglan í Minneapolis greindi frá því í nótt að tólf hefðu orðið fyrir skoti. Einn maður hafi látist af sárum sínum á sjúkrahúsi en meiðsli hinna ellefu teljast ekki lífshættuleg. Lögreglan sagðist telja að einungis væri um einn árásarmann að ræða og var honum eingöngu lýst sem fótgangandi manni. Engar handtökur hafa verið framdar og ekki er vitað hvað varð til þess að árásin var framin. Í viðtali við AP segir Fred Hwang, veitingamaður á svæðinu að lögreglan hafi verið mjög lengi á vettvang. Hwang sagði lögregluna hafa mætt á svæðið hálftíma eftir árásina en lögregla segir fyrstu bíla hafa verið mætta þremur mínútum eftir að tilkynning barst. Greint er frá því í umfjöllum AP um málið að fleiri tilkynningar um skot hefðu borist lögreglu í Minneapolis í gær. Erfiðlega hafi gengið að sinna þeim þar sem að lögreglu var mætt með óvild vegfarenda en lögreglan í Minneapolis hefur verið harðlega gagnrýnd undanfarnar vikur vegna dauða George Floyd sem myrtur var að lögreglumanninum Derek Chauvin í Minneapolis í maí.
Skotárásir í Bandaríkjunum Bandaríkin Mest lesið Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Erlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Innlent Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins Innlent Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Innlent Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Innlent Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Innlent Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Innlent Hringbraut lokað vegna bílslyss Innlent Spánverjar óska eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Eurovision Erlent Fleiri fréttir Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Spánverjar óska eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Eurovision Ráku yfirmann herstöðvarinnar á Grænlandi eftir heimsókn Vance Ætla að hætta að safna gögnum um losun gróðurhúsalofttegunda Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Telja mögulegt að dularfullar bækur frá miðöldum tengist Íslandi Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju Sjá meira