Fótbolti

Sjáðu magnaðan sprett Messi sem skilaði víta­spyrnu og markið hjá Ansu Fati

Anton Ingi Leifsson skrifar
Messi valsar á milli varnarmanna Leganes.
Messi valsar á milli varnarmanna Leganes. vísir/getty

Barcelona vann 2-0 sigur á Leganes í gær en fæðingin var ansi erfið. Sigurinn hafðist þó að lokum og Börsungar eru með fimm stiga forskot á Real Madrid, sem á þó leik til góða.

Leganes átti hættulegri færi í fyrri hálfleik en hinn ungi og afar efnilegi Ansu Fati skoraði fyrsta mark leiksins á 42. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Lionel Messi tók málin í sínar hendur í síðari hálfleik. Hann fiskaði vítaspyrnu á 69. mínútu með ótrúlegum spretti en hann fór sjálfur á punktinn og skoraði. Lokatölur 2-0.

Mörkin og magnaðan sprett Messi má sjá hér að neðan.

Klippa: Barcelona - Leganes 2-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×