Viðskipti innlent

Play áætlar að hefja leik næsta haust

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Flugfélagið Play kynnt í Perlunni í nóvember á síðasta ári.
Flugfélagið Play kynnt í Perlunni í nóvember á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

Skúli Skúlason, stjórnaformaður flugfélagsins Play, segir félagið stefna á að hefja sig til flugs í október á þessu ári. Hann segir flugmarkaðinn gjörbreyttan í kjölfar kórónuveirufaraldursins og segir stöðuna hagstæða fyrir nýtt flugfélag.

Þetta kemur fram í viðtali við Skúla í Viðskiptablaðinu. Þar segir hann að mörgu að huga. Mikill tími fari í viðræður við flugvélaleigusala og viðræður við þá um kjör, hvaða flugvélar henta félaginu best og hvernig þær koma til með að passa inn í samsetningu flota félagsins þegar fram líða stundir.

„Það liggur ekkert á þegar verið er að fara af stað með flug yfir vetrarmánuðina þegar fjöldi ferðamanna er minni. Það kostar mikið að vaxa ef þú gerir það of hratt, en ég held að við værum ekki að flýta okkur of hratt ef við værum komnir með sex til átta vélar með vorinu, jafnvel fleiri,“ hefur blaðið eftir Skúla.

Hann segir að hafa verði í huga að Play sé ekki eiginlegt frumkvöðlafyrirtæki, heldur sé verið að endurnýja aðgang að vel þjálfuðu starfsfólki. Innviðir og kerfi félagsins séu þannig klár. Í raun sé bara framkvæmdarhlutinn, flugið sjálft, eftir.

Standa vel miðað við keppinautana

Þá segir Skúli að Play standi vel miðað við keppinauta sína, sem sitji uppi með ónothæfar flugvélar og mikinn fjölda starfsfólks á launum. Hann segir Play vera með 36 manns í vinnu eins og er. Þó hafi ekki allir verið í fullu starfi meðan faraldur kórónuveirunnar stóð sem hæst, og starfsemin eftir því. Hann segir að þrátt fyrir að verið sé að „brenna á bilinu 200 til 300 þúsund evrum á mánuði í reksturinn núna,“ muni félagið geta staðið undir því þegar tekjustreymi kemur inn. Hann segist vona að það verði í haust.

Skúli segir þá að mesta óvissan felist einfaldlega í því hvernig faraldur kórónuveirunnar og hlutir tengdir henni komi til með að þróast.

„Flugrekstrarleyfið er klárt, bókunarsíðan er tilbúin, sem og samningar komnir við þjónustuaðila, birgja sem og kjarasamningar. Það eina sem er í raun eftir núna er að átta sig á hvenær Covid endar og hvernig við klárum restina.“

Hér má lesa viðtal Viðskiptablaðsins við Skúla.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×