Viðskipti innlent

Fimm milljarðar króna í auglýsingakaup til Google, Facebook og erlendra miðla

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Facebook og Google taka til sín stóra sneið af ísensku auglýsingakökunni
Facebook og Google taka til sín stóra sneið af ísensku auglýsingakökunni Getty/Chesnot

Ætla má að íslenskir auglýsendur hafi greitt Google, Facebook og öðrum útlenskum miðlum 5,2 milljarða fyrir birtingu auglýsinga árið 2018 samkvæmt varfærnu mati Hagstofunnar. Tekjur innlendra aðila af birtingu auglýsinga árið 2018 voru sambærilegar við það sem var árið 2004.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar sem birt hefur greiningu á auglýsingamarkaði fyrir árið 2018. Þar kemur fram að greiðslur fyrir birtingu auglýsinga í innlendum miðlum árið 2018 hafi numið 13,4 milljörðum króna eða tveimur prósentum lægri upphæð en árið 2017 reiknað á föstu verðlagi.

„Samkvæmt varfærnu mati má gera ráð fyrir að greiðslur fyrir birtingu auglýsinga í útlendum miðlum, einkum á vef, hafi numið 5,2 milljörðum króna, eða 38% af auglýsingakaupum innlendra aðila árið 2018,“ segir á vef Hagstofunnar.

Auglýsingatekjur innlendra fjölmiðlaMynd/Hagstofan

Þar kemur fram að þetta mat sé varfærið og byggt á gögnum um þjónustuinnflutning fyrir kaup á birtingu auglýsinga, markaðsrannsóknum og skoðanakönnunum. Þannig megi ætla að greiðslur til erlendra aðila fyrir birtingu auglýsinga á vef hafi numið vel yfir fimm milljörðum króna árið 2018, eða yfir 70 prósent þeirrar upphæðar sem innlendir aðilar greiddu fyrir birtingu auglýsinga á vef til innlendra og erlendra aðila.

Upplýsingar um tekjur erlendra af birtingu auglýsinga sem beint er að landsmönnum liggja ekki fyrir þar eð fæstir þessara aðila greiða virðisaukaskatt af sölu sinni til íslenskra stjórnvalda. Þar á meðal eru stóru vefmiðlarnir Google og Facebook, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar.

Þar kemur einnig fram að auglýsingamarkaðurinn hérlendis skeri sig í veigamiklum atriðum úr því sem gerist á öðrum Norðurlöndum þar sem hljóðvarp og dag- og vikublöð taka til sín stærri hluta af auglýsingatekjum á sama tíma og hlutur innlendra vefmiðla sé tiltölulega rýr, en nánari skiptingu má sjá á myndinni hér fyrir neðan.

Mynd/Hagstofan





Fleiri fréttir

Sjá meira


×