Innlent

Fjórir hrepptu fimm milljónir hver

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Happdrætti Háskólans.
Happdrætti Háskólans. Vísir/vilhelm

Fjórir miðaeigendur unnu fimm milljónir hver í marsútdrætti Happdrætti Háskóla Íslands. Dregið var í kvöld, að því er fram kemur í tilkynningu.

Allir miðaeigendur fengu hæsta vinning, fimm milljónir króna, í aðalútdrættinum. Sjö heppnir miðaeigendur fengu svo eina milljón króna hver og þá fengu þrettán miðaeigendur 500 þúsund króna vinning hver.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×