Lækka gjaldið í Vaðlaheiðargöng fyrir þau sem bruna í gegn Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. maí 2020 16:10 Vesturmunni Vaðlaheiðarganga vísir/tpt
Veggjald fyrir ökumenn fólksbíla sem keyra beint í gegnum Vaðlaheiðargöng án þess að skrá sig lækkar um næstu mánaðamót. Greiddar eru 2500 krónur fyrir slíkan akstur í dag en gjaldið lækkar um þúsund krónur 1. júní og verður því 1500 krónur. Engar breytingar verða þó á öðrum greiðsluháttum, eða eins og segir í tilkynningu Vaðlaheiðarganga: Breytingar við greiðslu í heimabanka hafa engar breytingar í för með sér fyrir þá sem hafa nú þegar skráð ökutæki á veggjald.is eða tunnel.is, hvorki fyrir þá sem greiða fyrir stakar ferðir eða þá sem hafa keypt 10, 40 eða 100 ferðir fyrirfram og njóta þannig afsláttarkjara. Þetta er sagt einfalda innheimtukerfi Vaðlaheiðarganga. Þau sem ekki hafa skráð bíl sinn í gegnum fyrrnefndar vefsíður fá kröfu í heimabanka og hafa tíu daga frest til að greiða gjaldið. Fólki hefur þótt þessi frestur of naumur að sögn aðstandendanna Vaðlaheiðarganga, auk þess sem einhver hafa ekki treyst sér til að skrá og borga í gegnum veggjald.is eða með smáforriti í síma. „Markmið með innheimtukerfi Vaðlaheiðarganga er að nýta tækni til eins hagkvæms rekstrar og hægt er auk þess að tryggja öryggi þeirra sem nota þau með frjálsu flæði,“ segir í skýringu Vaðlaheiðarganga og bætt við að þegar gjaldtakan í göngin hófst í ársbyrjun árið 2019 var ljóst að um nýjung væri að ræða. Innheimtan væri sjálfvirk og engin mönnuð skýli við göngin. „Það er eðlilegt að það taki viðskiptavini tíma að læra á kerfið sem virkar til framtíðar.“
Vaðlaheiðargöng Samgöngur Neytendur Mest lesið Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Viðskipti innlent Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Viðskipti innlent Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Viðskipti innlent Úr boltanum í tryggingarnar Viðskipti innlent Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Atvinnulíf Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Viðskipti innlent Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Fleiri fréttir Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Sjá meira