Hermaður í fangelsi fyrir morð á blaðamanni og unnustu hans Andri Eysteinsson skrifar 6. apríl 2020 19:08 Jan Kuciak og Martina Kusnirova voru myrt 25. febrúar 2018. Getty/Beata Zawrzel
Slóvakískur hermaður á fertugsaldri, Miroslav Marcek, hefur verið dæmdur í 23 ára fangelsi fyrir morðin á blaðamanninum Jan Kuciak og unnustu hans, Martinu Kusnirova í febrúar 2018. BBC greinir frá. Kuciak hafði verið að rannsaka ásakanir um spillingu slóvakískra viðskiptamanna og tengsl stjórnmálamanna við ítölsku ´Ndrangheta mafíuna. Mikil reiði braust út í samfélaginu eftir morðin og eftir að landsmenn höfðu mótmælt harðlega sagði þáverandi forsætisráðherra Slóvakíu, Robert Fico, af sér embætti, sömu sögu er að segja um ríkislögreglustjóra landsins. Marcek var ekki viðstaddur dómsuppkvaðningu í Pezinok í dag en hann hafði játað glæpinn. Dómarinn, Ruzena Szabova sagði Marcek hafa verið miskunnarlaus í gjörðum sínum og að Kuciak og Kusnirova hefðu aldrei átt möguleika á að verjast árásinni. Meintir vitorðsmenn Marcek, til að mynda viðskiptajöfurinn Marian Kocner, hafa neitað sök en mál gegn þeim eru nú rekin fyrir slóvakískum dómstól.
Slóvakía Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Innlent Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira