Fótbolti

Ögmundur fram­lengir til þriggja ára

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ögmundur í leik með Larissa.
Ögmundur í leik með Larissa. vísir/getty

Ögmundur Kristinsson hefur samið við gríska liðið Larissa um áframhaldandi samning hjá félaginu en Íslendingavaktin greinir fyrst frá hér heima.

Ögmundur var á sínu síðasta ári á samningi sínum hjá Larissa eftir að hafa komið til félagsins sumarið 2018.

Nú hafa félagið og Ögmundur hins vegar komist að samkomulagi um nýjan þriggja ára samning en Ögmundur er talinn hafa leikið afar vel í marki liðsins á leiktíðinni.







Hann hefur í tvígang verið valinn í lið umferðarinnar en félög eins og Rangers voru talinn horfa til Ögmundar fyrr á leiktíðinni.

Larissa er í 5. sæti grísku úrvalsdeildarinnar með 22 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×